Einn af hverjum hundrað lendir í vinnuslysi sem orsakar fjarveru frá vinnu Lovísa Ólafsdóttir skrifar 22. febrúar 2024 08:00 Það á ekki að geta gerst að einhver fari í vinnuna og snúi aldrei heim aftur. Fólk selur tíma sinn og hæfni til atvinnurekandans en ekki líf sitt. Líf hverrar manneskju er svo óendanlega miklu meira virði en sá kostnaður sem settur er í forvarnir og fyrirbyggjandi aðgerðir. Flest banaslys verða við notkun á tækjum Tölulegar upplýsingar frá Evrópu fyrir árið 2021 sýna að banaslysum á vinnustöðum fer fjölgandi og allt of margt fólk slasast við vinnu sína. Um 23% banaslysanna áttu sér stað í byggingariðnaðinum, um 17% í flutningaþjónustu, 15% í öðrum iðnaði og um 12% tengdust fiskveiðum, landbúnaði eða skógrækt. Hjá nágrannaþjóðum okkar létust 0,77 einstaklingar á hverja 100.000 starfandi í Svíþjóð og Finnlandi á móti 1,42 í Danmörku og 1,33 í Noregi árið 2021. Flest banaslysin urðu vegna notkunar á vélbúnaði eða öðrum tækjum. Sökum fjölgunar banaslysa í Evrópu fór af stað herferð um stafrænt öryggi haustið 2023 á vegum Evrópusambandsins. Til viðbótar við fjölgun banaslysa hefur einnig aukist tíðni slysa sem orsaka fjarveru frá vinnu, svokölluð fjarveruslys. Tæplega þrír fjórðu allra vinnuslysa í Evrópu ollu áverkum eins og innvortis áverkum, heilahristingi, tognunum, liðfæringum, sárum eða öðrum yfirborðsáverkum. Fjarveruslys voru algengust innan framleiðslufyrirtækja árið 2021 eða um 19% slysa. Algengara að karlar slasist en konur Ef við skoðum stöðuna hér á landi þá var fjöldi fjarveruslysa sem eru tilkynningaskyld til Vinnueftirlitsins nokkuð stöðug á árunum 2019–2022, eða um 2.000–2.200 tilkynningar á hverju ári. Þetta þýðir að á hverjum virkum degi slösuðust að meðaltali fleiri en átta manneskjur í vinnuslysi sem leiddi til fjarveru frá vinnu. Á fyrstu sex mánuðum ársins 2023 höfðu borist um 1.100 tilkynningar vegna fjarveruslysa til Vinnueftirlitsins. Það er algengara að karlar slasist en konur og má rekja það meðal annars til þess að fleiri karlar starfa í byggingariðnaði, stóriðju og flutningaþjónustu þar sem er að finna mestu áhættuna á slysum. Enn fremur eru elstu og yngstu starfsmennirnir í meiri hættu en aðrir á að slasast. Eru hjólin að snúast í átt að árangri – er slysum að fækka? Þegar þróun á heildarfjölda vinnuslysa er skoðuð, og tekið er mið af síðustu tölum frá embætti landlæknis frá 2019, þá slasast að meðaltali sextán manns í vinnunni á hverjum virkum degi. Gera má ráð fyrir að vinnuslysin séu fleiri vegna þess að ekki voru allar heilbrigðisstofnana að senda upplýsingar inn í gagnagrunn embættisins það ár. Árið 2005 var hlutfall vinnuslysa af heildarfjölda starfandi fólks á íslenskum vinnumarkaði um 4,1% samkvæmt tölulegum upplýsingum frá landlækni, en þá var skráningarmenningin ekki eins öflug og nú. Fjórtán árum síðar, árið 2019, var hlutfallið 2,2%. Þó svo að gera megi ráð fyrir einhverjum skekkjumun í þessum tölum þá sýnir þetta þróun í rétta átt. Á árunum 2005 til 2019 tókst að forða að minnsta kosti tvö þúsund og sex hundruð einstaklingum frá vinnuslysi með bættri öryggismenningu, fjölgun á öryggisstjórum og mannauðsfólki ásamt markvissum forvörnum. Eigum ekki að sætta okkur við banaslys á vinnustöðum Margt hefur áunnist varðandi banaslys á vinnustöðum þó að við eigum aldrei að sætta okkur við að þau eigi sér yfirleitt stað. Á árunum 1980–1989 voru 5,4 banaslys á vinnustöðum á ári að meðaltali, til samanburðar við 2,2 á árunum 2010–2022. Árið 2023 urðu þrjú banaslys á vinnustöðum sem er þremur banaslysum of mikið. Banaslys meðal sjómanna hér á landi heyra næstum sögunni til sem er mikill munur frá því sem áður var. Liggur ástæðan meðal annars í bættum og tæknivæddum skipaflota og góðu og markvissu forvarnastarfi, ekki síst með tilkomu Slysavarnaskóla sjómanna sem VÍS hefur unnið með í gegnum árin meðal annars í þróun á ATVIK og kaupum á vinnuflotgöllum. Ábyrgð stjórnenda Árangur í öryggismálum er ekki tilviljun heldur ákvörðun.Þó svo að mikill árangur hafi náðst í forvörnum og töluverðar framfarir átt sér stað í öryggismálum á vinnustöðum undanfarin tuttugu ár er enn mikið verk að vinna. Í dag eru kyndilberar öryggismála innan vinnustaða aðallega öryggisstjórarnir eða einstaklingur innan vinnustaðarins sem brennur fyrir öryggismálum. Það er hins vegar á ábyrgð stjórnenda að tryggja að vinnuaðstæður og vinnuskipulag sé þannig að starfsmenn verði ekki fyrir slysi. Þó er starfsmaðurinn sjálfur ekki undanskilinn ábyrgð vegna þess að hver og einn einstaklingur ber ábyrgð á sjálfum sér og náunganum sem gæti verið í hættu. Áhætturnar liggja meðal annars í menningunni sem viðhöfð er innan vinnustaðarins, samskiptum innan hans, og ekki síst í því að áhættumat er ekki framkvæmt og þar með eru forvarnir ekki settar inn í heildarskipulag og áætlanir vinnustaðarins. 70% framkvæmir ekki áhættumat Samkvæmt rannsókn sem unnin var af Evrópusambandinu árið 2018 á því hvernig „örfyrirtækjum“ og litlum fyrirtækjum gangi að uppfylla ákvæði vinnuverndarlaga, þá eru um 70% þeirra ekki að ná að uppfylla ákvæði laganna og þar með talið framkvæmdina á áhættumati eins og lögin kveða á um. Fyrirtækin telja meðal annars matið vera flókið í framkvæmd, þörf sé á einföldun og skortur sé á ráðgjöf og stuðningi. Oftar en ekki skortir bolmagn innan örfyrirtækja og lítilla fyrirtækja og gæða-og öryggisstjórnun er oft hluti af öðrum verkefnum sem gerir það að verkum að forvarnir verða ómarkvissari. Aðal áhersla stjórnenda er að halda fyrirtækinu gangandi, álagið er mikið og hendurnar oft fáar. Lang stærsti hluti fyrirtækja hér á landi eru einmitt lítil og meðalstór fyrirtæki samanborið við „örfyrirtæki“ og lítilla fyrirtækja í Evrópu og því er hægt að heimfæra þessar niðurstöður yfir á íslensk fyrirtæki. Ef okkur á að takast að ná betri árangri og fækka slysum enn frekar er mikilvægt að auka stuðning við lítil og meðalstór fyrirtæki, einfalda þætti eins og áhættumatið og efla forvarnaúrræði í formi stafrænna lausna. Mörg fyrirtæki í byggingariðnaði í Svíþjóð hafa til dæmis innleitt svokallað SSG fræðslukerfi hjá sér sem samhæfir iðnaðarþekkingu og þróar staðlaðar lausnir á algengum vandamálum. Einnig hefur verið settur á laggirnar öryggisskóla í mannvirkjagerð að finnskri fyrirmynd þar sem áhersla er lögð á að þjálfa einstaklinginn í að finna sín eigin öryggismörk ásamt því að efla öryggisvitund í starfsmannahópnum. Hægt að senda ábendingar og skrá atvik með farsíma VÍS hefur í gegnum tíðina lagt mikla áherslu á öryggi og forvarnir. Atvikaskráningakerfið ATVIK sem VÍS hefur þróað og leggur til inn í forvarnarstarf hjá sínum viðskiptavinum hjálpar fyrirtækjum að hafa yfirsýn yfir mögulegar hættur og slys í starfseminni svo hægt sé að innleiða forvarnir með markvissum hætti. Í kerfinu verða til staðlaðar skýrslur sem sendar eru með rafrænum hætti, meðal annars til Vinnueftirlitsins. Fyrir síðustu áramót var gerð mikilvæg kerfisbreyting á ATVIK sem gerir einstaklingum mögulegt að skrá atvik eða senda inn ábendingu um hættur í vinnuumhverfinu ásamt myndum í gegnum farsíma, óháð því hvar viðkomandi er staddur við vinnu sína. Forvarnir og öryggismál í fyrirrúmi Þann 29. febrúar næstkomandi verður Forvarnaráðstefna VÍS haldin í fjórtánda sinn í Hörpu. Þar mun einvala hópur fyrirlesara fjalla um öryggis- og umhverfisstjórnun út frá ólíkum sjónarhóli. Forvarnaráðstefna VÍS hefur skapað sér ákveðinn virðingarsess í íslensku atvinnulífi og er þetta einn stærsti viðburður hér á landi þar sem forvarnir og öryggismál eru í fyrirrúmi. Ráðstefnan er öllum opin. Höfundur er sérfræðingur í forvörnum fyrirtækja hjá VÍS. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinnuslys Slysavarnir Tryggingar Mest lesið Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Eftirlit Alþingismanna með ráðuneytunum Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Kári beislaður við Vaðöldu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Það vantar ekki enn eitt átakið – það vantar aðgerðir Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Að leita langt yfir skammt Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Framkvæmd skólastefnu fær falleinkunn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Slönguspilið og svikamyllan Teitur Atlason skrifar Skoðun Þetta er algjört möst í fríið Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Ég vel hattana sjálf Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Við erum að selja loftslagsmálin vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Hin meinta lýðræðisveisla Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen skrifar Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson skrifar Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um fáránleika þess að raska grafarró þjóðskáldsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Þegar umræðan og staðreyndirnar fara ekki saman Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki aðeins um lækna heldur líka um sjúklinga Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Fyrirtæki sem læra hægt munu deyja hægt Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir skrifar Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar Skoðun Háskólar falla á prófi í samkeppnisrétti Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Jarðhiti sem samkeppnisforskot Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Ef fyrirtæki nota AI til að fækka fólki, eru þau að hugsa of smátt Vaka Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Mygluna burt úr Laugalækjarskóla Stefán Steingrímur Bergsson skrifar Sjá meira
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun
Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun