Leggja til Paul Horner í stað Brynjólfs Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. mars 2024 11:23 Brynjólfur stígur til hliðar og líklegt að Paul Horner taki við formennsku í stjórn samþykki hluthafar tilnefningu tilnefningarnefndar. Tilnefningarnefnd Arion banka leggur til að Paul Horner verði næsti stjórnarformaður bankans. Brynjólfur Bjarnason lætur af störfum sem formaður eftir fimm ár í brúnni.
Þetta kemur fram í skýrslu tilnefninanefndar fyrir aðalfund bankans þann 13. mars. Nefndin leggur til að stjórnarmönnum verði fækkað úr sex í fimm. Fjórtán framboð til aðalstjórnar bárust nefndinni sem ákvað að leggja til að allir sitjandi stjórnarmenn að frátöldum Brynjólfi sætu áfram. Það eru auk Horner þau Kristín Pétursdóttir sem er tilnefnd sem varaformaður, Liv Fiksdahl, Steinunn K. Þórðardóttir og Gunnar Sturluson. Lagt er til að Horner verði nýr formaður stjórnar. Þá leggur nefndin til að Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir og Einar Hugi Bjarnason skipi varastjórn. Af þeim fjórtán sem buðu fram krafta sína drógu sjö framboð sitt til baka þegar ljóst var að þeir hlytu ekki náð fyrir augum tilnefningarnefndar. Tveir halda framboði sínu til streitu. Það eru þau Guðrún Johnsen, fyrrverandi varaformaður stjórnar Arion banka, og Peter Franks hagfræðingur. Tilnefningarnefnd segist í skýrslu sinni vilja upplýsa hluthafa um röksemdir sínar og ástæður þess að hin níu framboðin til stjórnar hlutu ekki tilnefningu. Ekki sé þó hægt að upplýsa um nöfn sjö þeirra því þau hafi dregið framboð sitt til baka. „Af þeim níu frambjóðendum sem ekki hlutu tilnefningu voru að mati tilnefningarnefndar tveir frambjóðendur með menntun, reynslu og þekkingu á íslensku viðskiptalífi og fjármálamörkuðum sem nauðsynleg telst til að geta sinnt stjórnarstörfum fyrir Arion banka með viðunandi hætti. Niðurstaða tilnefningarnefndar var þó aðsambærileg þekking og reynsla, jafngóð ef ekki betri, væri nú þegar til staðar innan núverandi stjórnar og því væri ekki réttlætanlegt að mæla með því við hluthafa að kjósa annan eða báða þessa frambjóðendur í stjórn bankans í stað sitjandi stjórnarmanna,“ segir nefndin. „Hinir sjö frambjóðendurnir höfðu að mati tilnefningarnefndar ekki fyllilega til staðar þann bakgrunn, menntun og/eða reynslu, sem gæfi tilefni til tilnefningar til stjórnarsetu í Arion banka.“ Tveir þeirra séu lögmenn með ágæta reynslu á því sviði, nokkra þekkingu á fjármálamörkuðum og nokkra reynslu af stjórnarstörfum. „Í ljósi þess að reyndur lögmaður situr nú þegar í stjórn bankans, var það niðurstaða tilnefningarnefndar að fullnægjandi þekking á þessu sviði væri þegar til staðar í aðalstjórn bankans og því ekki grundvöllur til tilnefningar. Aðrir tveir frambjóðendur sem ekki hlutu tilnefningu eru annars vegar með menntun í hagfræði og hins vegar verkfræðimenntun, með starfsreynslu á opinberum vettvangi og í fjártækni en takmarkaða reynslu af fjármálamörkuðum og stjórnarsetu í fjármálafyrirtækjum. Var það niðurstaða tilnefningarnefndar að tilnefna ekki þessa frambjóðendur vegna skorts á þekkingu á fjármálamörkuðum,“ segir nefndin. „Þrír frambjóðendur eru erlendir ríkisborgarar, tveir þeirra með mikla reynslu af störfum fyrir erlenda banka eða fjármálafyrirtæki og sá þriðji á sviði endurskoðunar og ráðgjafar, en allir teljast hafa takmarkaða reynslu af stjórnarsetu og takmarkaða þekkingu á íslensku samfélagi eða viðskiptalífi. Í ljósi þess að nær öll starfsemi Arion banka fer fram innanlands, og að í stjórn bankans sitja þegar tveir erlendir ríkisborgarar með mikla reynslu, taldi tilnefningarnefnd ekki grundvöll fyrir tilnefningu þessara einstaklinga.“
Arion banki Fjármálafyrirtæki Vistaskipti Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira