Sjáðu mörk Mbappé og Kane í Meistaradeildinni í gærkvöldi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2024 07:41 Harry Kane fagnar hér öðru marka sinna fyrir Bayern München í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær. Getty/Daniel Kopatsch Stórstjörnurnar Kylian Mbappé og Harry Kane voru báðir á skotskónum í mikilvægum leikjum í Meistaradeildinni í gærkvöldi og nú má sjá mörkin úr leikjunum hér inn á Vísi.
Paris Saint-Germain og Bayern München urðu í gær fyrstu liðin til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í ár. Kylian Mbappé skoraði bæði mörk Paris Saint-Germain í 2-1 útisigri á Real Sociedad en franska liðið vann þar með 4-1 samanlagt. Mbappé skoraði þrjú af fjórum mörkum í einvíginu. PSG hafði dottið út í sextán liða úrslitunum undanfarin tvö tímabil og alls fimm sinnum á síðustu sjö tímabilum og þetta var því langþráð takmark hjá Mbappé og félögum á hans síðasta tímabili með liðinu. Klippa: Mörkin úr leik Sociedad og PSG Harry Kane skoraði líka tvö mörk þegar Bayern vann 3-0 heimasigur á ítalska félaginu Lazio. Lazio hafði unnið fyrri leikinn 1-0 en tvö mörk Bæjarara fyrir hlé komu liðinu í góð mál. Kane skoraði fyrsta markið, Thomas Müller jók muninn í uppbótartíma fyrri hálfleiksins og Kane innsiglaði síðan sigurinn með öðru marki sínu sem kom á 66. mínútu. Kane var réttur maður á réttum stað í teignum í báðum mörkunum þegar boltinn datt fyrir hann. Fyrra markið skoraði hann með skalla en það síðara með skoti eftir frákast. Hér fyrir ofan og neðan má sjá mörkin úr leikjunum tveimur. Klippa: Mörkin úr leik Bayern og Lazio
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira