Innlent

At­huga­semdir frá Sam­keppi­s­eftir­litinu hafi komið seint fram

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og starfandi matvælaráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og starfandi matvælaráðherra. Vísir/Ívar Fannar

Forsætisráðherra segir að athugasemdir Samkeppniseftirlitsins við búvörulög verði teknar til skoðunar, en lögin voru samþykkt í vikunni. Formaður atvinnuveganefndar vísar gagnrýni um gagnsemi laganna á bug. 

Breytingar á búvörulögum voru samþykktar síðastliðinn fimmtudag en þær fela í sér undanþágur kjötafurðarstöðva frá samkeppnislögum að skilyrðum uppfylltum. Breytingarnar hafa sætt þónokkurri gagnrýni úr ýmsum áttum. Þannig hefur forstjóri Samkeppniseftirlitsins sagt mjög langt gengið í að skapa möguleika á einokun. 

Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda hefur tekið í sama streng, og segir félög sem skili milljarða hagnaði fá lausan tauminn frá öllu samkeppnisaðhaldi. Þá hafa einhverjir þingmenn stjórnarandstöðunnar sagt breytingarnar í senn munu hafa slæm áhrif á bændur og neytendur.

Formaður atvinnuveganefndar vísar slíkri gagnrýni á bug.

„Fyrst og fremst er tilgangurinn þveröfugt, að styrkja bændur og að við getum haldið áfram að framleiða vöru til neytenda á góðu verði,“ segir formaðurinn, Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknarflokksins.

Bregðast þurfi við breyttum veruleika í greininni.

„Hér flæðir inn kjöt erlendis frá sem landbúnaðurinn er í samkeppni við, og við þurfum þá að bregðast við með þeim hætti að vera samkeppnishæf.“

Munu skoða málið 

Forsætisráðherra sem nú er einnig starfandi matvælaráðherra segir að vissulega hafi orðið töluverðar breytingar á frumvarpinu frá því það var lagt fram.

„Eftir aðra umræðu málsins þá berast miklar athugasemdir frá Samkeppniseftirlitinu og fleiri aðilum og þær athugasemdir koma auðvitað töluvert seint fram, vegna þess að málið tekur þessum miklu breytingum. Þannig að málið var í raun og veru samþykkt óbreytt og meiri hluti nefndarinnar færði bara ágæt rök fyrir þessum breytingum,“ segir Katrín Jakobsdóttir.

Þær athugasemdir verði engu að síður teknar til skoðunar í matvælaráðuneytinu í næstu viku.

Ef það kemur eitthvað upp úr þeirri skoðun, að þetta séu kannski réttmætar athugasemdir, hver eru þá næstu skref?

„Þá verður það að sjálfsögðu skoðað með atvinnuveganefndinni og meiri hluti hennar hefur líka boðað að þau ætli að fara yfir málið eftir páska. Við munum fara yfir þetta og við munum líka fara yfir þær vangaveltur sem hafa verið uppi, hvort þetta stangist mögulega á við eitthvert evrópskt regluverk. Þannig að við munum bara gera þetta og vanda til verka.“


Tengdar fréttir

„Algjörlega búið að kippa samkeppnislögunum úr gildi“

Þingmaður Viðreisnar segir kaldhæðnislegt að í sömu viku vinni Alþingi að því að ríkisvæða tryggingarfélag og útrýma samkeppni á búvörumarkaði. Hann telur að fólk átti sig ekki á hversu slæmar afleiðingar breytingarnar á búvörulögunum muni hafa, bæði á bændur og neytendur. 

„Fram­sókn tryggt að páska­lambið renni ljúf­lega niður í ár“

Halla Signý Kristjánsdóttir fagnaði breytingum á búvörusamningum á þinginu áðan en það gerði Sigmar Guðmundsson Viðreisn ekki. Hann óskaði Sjálfstæðisflokknum sérstaklega til hamingju með að hafa á örfáum dögum ríkisvætt tryggingafélag og tryggt einokun milliliða í landbúnaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×