Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 28. mars 2024 07:36 Veðurspá bendir til þess að bjart verður í veðri á höfuðborgarsvæðinu næstu daga. Vísir/Vilhelm Bjart verður að mestu um landið sunnanvert í dag. Dálítil él verður á Norður- og Austurlandi og hvassast suðaustan til. Annað kvöld bætir heldur í vind.
Þetta kemur fram í textaspá Veðurstofunnar, þar sem segir að frost mælist í dag 0 til 6 stig en frostlaust verði sunnantil yfir daginn. Þá verði vindur norðaustan 8-18 m/s. Á höfuðborgarsvæðinu gengur hins vegar í norðaustan 5-13 m/s. Léttskýjað og hiti 0 til 4 stig yfir daginn. Vindur verður hægari í kvöld, en norðaustan 8-13 m/s síðdegis á morgun. Hæð yfir Grænlandi og lægðasvæði í grennd við Bretlandseyjar stjórna veðrinu í dag, að mati veðurfræðings. Áttin verður því norðaustlæg, víða kaldi eða stinningskaldi, en allhvasst við suðausturströndina. Víða dálítil él og vægt frost, en yfirleitt þurrt og bjart sunnan heiða með hita að 5 stigum yfir daginn. Veðrið verður svipað á morgun, en síðdegis fer smám saman að bæta í vind. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðaustan 8-15 m/s og él, en yfirleitt þurrt og bjart um landið sunnanvert. Bætir heldur í vind seinnipartinn. Frost 0 til 5 stig, en frostlaust sunnantil yfir daginn. Á laugardag: Norðaustan 13-20, hvassast suðaustantil. Él norðan- og austanlands, annars bjart að mestu. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Norðaustan og norðan 13-20 og él, en bætir í vind og ofankomu seinnipartinn. Úrkomulítið sunnanlands. Frost 0 til 8 stig. Á mánudag: Hvöss norðaustanátt og snjókoma með köflum, en dregur úr vindi og úrkomu eftir hádegi. Þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi. Hlýnar lítillega. Á þriðjudag og miðvikudag: Norðaustlæg eða breytileg átt, bjart með köflum og yfirleitt þurrt. Svalt í veðri.
Veður Mest lesið Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Innlent Telur áform ráðherra vanhugsuð Innlent Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Erlent Austurríki hvetur ríki til að draga sig ekki úr Eurovison Erlent Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Innlent Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Innlent Þrjátíu handteknir í óeirðum í Hollandi Erlent Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Innlent Staða Framsóknarflokksins, afnám áminningarskyldu og Evrópumálin í Sprengisandi Innlent Efast um að olíuleit beri árangur Innlent Fleiri fréttir Grunn lægð yfir landinu í dag en suðlægir vindar á morgun Víða kaldi og allhvasst en lægir smám saman í dag Gular viðvaranir og svalri norðanátt beint til landsins Slydduél norðantil en þurrt og bjart sunnan heiða Kólnar í kvöld og allvíða næturfrost Kólnar þegar líður á vikuna Milt veður og víða væta Rigning með köflum víðast hvar Blautt víðast hvar Dálítil rigning og lægðir á sveimi Væta með köflum og dregur úr vindi Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Hvasst og samfelld rigning austast Má reikna með vatnavöxtum suðaustantil Rigning í dag Víðast hægur vindur og hiti að fimmtán stigum Rigning norðan- og austantil en bjart suðvestanlands Léttskýjað vestan- og sunnantil en blautara annars staðar Hiti að tuttugu stigum og hlýjast sunnantil Líkur á hellidembu, þrumum og eldingum suðvestantil Hlýtt og rakt loft yfir landinu Vindur á undanhaldi og hiti að tuttugu stigum Blæs hressilega af austri á landinu Gul viðvörun á Suðurlandi vegna hvassviðris Kröpp lægð stjórnar veðrinu næstu daga Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Litlar breytingar á hlaupi í Hvítá við Húsafell frá því í gær Skýjað, lítilsháttar væta og temmilega hlýtt Hiti að 21 stigi í dag Hiti að nítján stigum í dag en yfir tuttugu á morgun Sjá meira