Flugeldar fyrir leik sem Willum skoraði í Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. mars 2024 21:01 Willum hefur spilað vel á tímabilinu og skoraði sitt sjöunda deildarmark í dag. Henny Meyerink/BSR Agency/Getty Images Willum Þór Willumsson var á markaskónum í 3-0 sigri Go Ahead Eagles gegn Excelsior í 27. umferð hollensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.
Aðdáendur GA Eagles héldu upp á tuttugu ára afmæli stuðningsmannafélagsins fyrir leik með flugeldum og blysum. Corteo van Go Ahead Eagles-supporters ter ere van het 20-jarig jubileum van @SfeerteamADHD 🔥 pic.twitter.com/Eu2DYLpi9k— Voetbal Ultras (@VoetbalUltras) March 30, 2024 Net tijdens fietstocht het sfeerteam van de Eagles gespot. 😀#Deventer #GoAhead #GoaHeadEagles #ReinigendeReporter pic.twitter.com/qii859BMpm— Jeffrey (@WillemsJeffrey) March 30, 2024 GA Eagles voru langtum betra lið leiksins þrátt fyrir að halda örlítið minna í boltann. Willum Þór spilaði sem framliggjandi miðjumaður og varð fyrstur til að koma boltanum í netið á 41. mínútu, miðvörðurinn Gerrit Nauber tvöfaldaði svo forystu heimamanna á 70. mínútu og Evert Linthorst gerði útslagið með þriðja markinu á 81. mínútu. Þetta var sjöunda mark Willums í 25 leikjum á tímabilinu, þar að auki hefur hann gefið tvær stoðsendingar og skorað eitt mark í bikarleik. GA Eagles eru í 7. sæti deildarinnar, stigi á eftir Kristiani Hlynssyni og félögum í Ajax. Sjö umferðir eru eftir og það er alllangt, tíu stig, í 4. sætið sem gefur þátttökurétt í Evrópudeildinni. Liðin í 5.–8. sæti fara í Evrópudeildarumspil.
Hollenski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Sjá meira