Viðskipti innlent

Rögn­valdur nýr yfir­lög­fræðingur hjá Land­spítala

Atli Ísleifsson skrifar
_Y5A2859-LSH-2024-Rögnvaldur Gunnar Gunnarsson-20x30

Rögnvaldur Gunnar Gunnarsson hefur verið ráðinn sem yfirlögfræðingur Landspítala. Hann hóf störf í síðasta mánuði.

Á vef Landspítala segir að Rögnvaldur sé með meistarapróf í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands, BA-próf í lögfræði frá sömu deild og BA-próf í heimspeki frá Háskóla Íslands.

„Hann hefur starfað í opinberri stjórnsýslu allan sinn starfsferil og hefur umfangsmikla þekkingu og reynslu á því sviði. Þá hefur hann starfað við fjölbreytt og krefjandi lögfræðileg verkefni sérstaklega á sviði stjórnsýslu heilbrigðismála.

Rögnvaldur hefur starfað sem lögfræðingur hjá vísindasiðanefnd, nefndarmaður í vísindasiðanefnd, lögfræðingur og síðar staðgengill skrifstofustjóra í heilbrigðisráðuneytinu og núna síðast sem framkvæmdastjóri vísindasiðanefndar,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×