Kennari sem sló barn fær milljónir Árni Sæberg skrifar 10. apríl 2024 15:34 Hæstiréttur kvað upp dóm í málinu í dag. Vísir/Vilhelm Hæstiréttur hefur dæmt Dalvíkurbyggð til þess að greiða konu tæpar ellefu milljónir króna í skaða- og miskabætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Konan var rekin úr starfi grunnskólakennara fyrir veita þrettán ára stúlku kinnhest.
Mál konunnar vakti mikla athygli þegar henni voru dæmdar alls átta milljónir króna í skaða- og miskabætur í héraði vegna ólögmætrar uppsagnar í febrúar í fyrra. Þrátt fyrir að óumdeilt væri að hún hefði löðrungað barnið í íþróttatíma við Dalvíkurskóla studdu bæði Kennarasamband Íslands og Félag grunnskólakennara við bakið á konunni. Þeim dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra var snúið í Landsrétti í maí síðastliðnum á þeim grundvelli að konan hefði framið gróft brot í starfi sem heimilaði skólanum að segja henni fyrirvaralaust upp störfum. Ekki réttlætanlegt en þó ekki gróft brot Í dómi Hæstaréttar, sem kveðinn var upp klukkan 14 í dag, er tekið fram að þótt ekki væri réttlætanlegt að kennari veitti nemanda kinnhest yrði við mat á því hvort brot konunnar teldist gróft að skoða háttsemi hennar heildstætt á grundvelli allra atvika. Háttsemin hafi verið óundirbúið viðbragð hennar við kinnhesti sem stúlkan veitti henni eftir að hafa neitað að fylgja fyrirmælum. Í því hefði ekki falist líkamleg refsing eða líkamlegt inngrip í refsingarskyni sem starfsfólki er óheimilt að beita samkvæmt reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum. Í dómi Landsréttar sagði að daginn sem umdeilt atvik átti sér stað hafi kennarinn verið með kennslustund utandyra fyrir drengi sem voru að spila fótbolta. Stúlkunni hefði þá af öðrum kennara verið vísað úr annarri kennslustund, sem fór fram innan dyra fyrir stúlkur, þar sem hún kom ekki með íþróttaföt í skólann. Stúlkan hefði fengið þau fyrirmæli frá þeim kennara að ganga ákveðinn hring í bænum í stað þess að vera viðstödd kennslustundina. Frekar en að gera það hafi nemandinn sest á grasflöt við fótboltavöllinn þar sem konan var að sinna kennslu. Að mati hennar hafi þessi viðvera truflað kennslustundina og hún beðið nemandann því um að fara. Þau samskipti hafi endað með þeim hætti að nemandinn gaf kennaranum kinnhest. Konan hafi svarað í sömu mynt og gefið nemandanum kinnhest. Hún hafi kveðist hafa upplifað ógn af nemandanum og gert ráð fyrir fleiri höggum enda hafi hún talið nemandann vera í „ham.“ Engin rök fyrir því að konan myndi valda skaða Enn fremur bæri að líta til þess að konan hefði strax tilkynnt atvikið til skólastjórnenda og þannig leitast við að koma málinu í réttan farveg innan skólans. Skólastjóri hefði þó ekki gripið til sérstakra aðgerða sem hefði verið rétt við þessar aðstæður. Í ljósi þessara atvika hafi ekki verið fallist á að konan hefði orðið uppvís að grófu broti í starfi. Þá hefði fullyrðing Dalvíkurbyggðar um að áframhaldandi störf konunnar við skólann myndu valda skaða fyrir starfsemi hans með vísan til öryggis nemenda ekki verið studd neinum frekari rökum eða gögnum. Samkvæmt þessu hefðu skilyrði kjarasamningsákvæðis til að víkja konunni fyrirvaralaust úr starfi án undanfarandi áminningar ekki verið uppfyllt og ákvörðun Dalvíkubyggðar því ólögmæt. Dalvíkurbyggð var dæmd til þess að greiða konunni níu milljónir króna í skaðabætur og 1,8 milljónir króna í miskabætur. Þá var Dalvíkurbyggð gert að greiða konunni 3,6 milljónir króna í málskostnað á öllum dómstigum.
Dómsmál Dalvíkurbyggð Grunnskólar Skóla - og menntamál Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira