Kawhi-lausir Clippers í engum vandræðum með Mavericks Ágúst Orri Arnarson skrifar 21. apríl 2024 22:27 Gengi LA Clippers hefur verið upp og ofan í vetur en þeir sýndu sterka frammistöðu í fyrsta leik úrslitakeppninnar. vísir/Getty Los Angeles Clippers unnu öruggan sigur, 109-97, gegn Dallas Mavericks í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni NBA.
LA Clippers voru án eins síns besta manns. Kawhi Leonard hefur ekki spilað síðan 31. mars útaf bólgum í hné eftir aðgerð. Hann hefur æft einn að undanförnu og vonir eru bundnar við endurkomu hans en ólíklegt þykir að hann nái næsta leik. LA Clippers fóru vel af stað í leik kvöldsins og leiddu með tólf stigum, 34-22, eftir fyrsta leikhluta. Þeir stigu fæti svo enn fastar á bensíngjöfina og leiddu leikinn 56-30 þegar flautað var til hálfleiks. Mavericks liðið bætti aðeins úr sínum málum í seinni hálfleik en munurinn milli liðanna reyndist þeim of mikill að lokum, 109-97. Luka Doncic (33 stig-6 stoð.-13 frák.) og Kyrie Irving (31-4-7) leiddu sóknarleik Mavericks. Báðir með meira en þrjátíu stig, næsti fyrir neðan var með 11 stig. Það var jafnari dreifing milli manna í Clippers, en þeir spiluðu reyndar ekki á nema 8 mönnum. James Harden endaði stigahæstur með 28 stig. Miðherjinn Ivica Zubac var illviðráðanlegur í teignum og greip 15 fráköst. Liðin mætast næst á miðvikudag.
NBA Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Sjá meira