Ísland tryggði sér farseðil á heimsmeistaramótið í handbolta 2025 með afar öruggum 24-37 sigri gegn Eistlandi ytra. Ísland vann fyrri leik liðanna 50-25 og einvígið samanlagt 87-49.
Það var allt annað yfirbragð á Eistunum í þessum leik en þeim fyrri. Mun þéttari varnarleikur og ágætis sóknarleikur á köflum.
Þeim tókst að loka vel á ýmislegt sem Ísland reyndi en liðið býr yfir fjölbreyttu vopnabúri og réðst til árásar þegar og þar sem tækifærin gáfust.
Ómar Ingi Magnússon var fremstur í flokki og raðaði inn sjö mörkum í fyrri hálfleik. Gísli Þorgeir dreifði boltanum og gaf góðar stoðsendingar. Þá var mikið leitað út í vinstra hornið á Orra Frey Þorkelsson sem átti frábæran fyrri hálfleik og skoraði sjö mörk líkt og Ómar. Hálfleikstölur 13-18.
Allt það helsta úr fyrri hálfleik. Ísland leiðir með fimm, 13-18 pic.twitter.com/0rGHV1nZAg
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) May 11, 2024
Í seinni hálfleik voru margar breytingar gerðar á íslenska liðinu. Ágúst Elí kom inn í markið, róterað mikið og allir leikmenn fengu mínútur, hornamönnunum var skipt út en Orri Freyr kom reyndar aftur inn þegar Bjarki Már skaut í andlit markmanns úr víti. Ómar Ingi Magnússon kom ekki meira við sögu í seinni.
Eistar gáfu aðeins eftir í seinni hálfleik og hleyptu íslenska liðinu lengra fram úr. Vörnin sem hélt þokkalega í fyrri hálfleik opnaðist á ný og ef ekki hefði verið fyrir markmanninn Rasmus Ots hefði endað mun verr. Hann endaði með alls 14 varin skot.
Ísland sigldi samt örugglega út úr þessu verkefni og verður meðal þjóða á HM 2025 sem fer fram í Danmörku, Noregi og Króatíu.
Atvik leiksins
Hendrik Koks gaf eistneskum áhorfendum ástæðu til að gleðjast þegar hann skoraði skemmtilegt sirkusmark á 48. mínútu eftir sendingu frá Jurgen Rooba í hægra horninu.
Dómarar – 8
Lettarnir Edmunds Bogdanovs og Ivars Cernavksis héldu utan um flauturnar. Litháinn Valdas Gecevicius var eftirlitsmaður.
Edmunds fékk boltann í sig á 52. mínútu og stöðvaði skyndisókn Íslands eftir varið skot og sendingu frá markverðinum Ágústi Elí. Eitt skipti sem var augljóslega brotið á Einari Þorsteini í skotinu.
Að öðru leyti alls ekkert út á þá að setja.
Stjörnur og skúrkar
Ómar Ingi og Gísli Þorgeir allt í öllu í fyrri hálfleik sérstaklega. Óðinn Ríkharðsson átti frábæran seinni hálfleik, kom 6 mörkum að. Viggó Kristjánsson var þá í stærru hlutverki og skoraði fimm. Orri Freyr kom aftur inn undir lokin og endaði markahæstur með 9 mörk.
Orri Freyr Þorkelsson var markahæstur Íslendinga í dag með níu mörk. Hér er eitt af þeim glæsilegri, þar sem hann sneiðir boltann yfir markvörðinn🤾♂️ pic.twitter.com/KdRDY5qegc
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) May 11, 2024