Sigurviss lið hefja leikinn í Leikið um landið Leikið um landið 22. maí 2024 16:08 Lið Bylgjunnar, FM957 og X977 fara yfir stöðuna eftir fyrstu þraut dagsins sem var spurningakeppni. Keppnin heldur áfram á morgun en lið Bylgjunnar leiðir eftir fyrsta keppnisdag. Þrautabrautin Leikið um landið hófst í gær en þar skora útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 hver á aðra í skemmtilegum þrautum á leið sinni hringinn kringum landið.
Lið Bylgjunnar í ár skipa Þórdís Valsdóttir og Ómar Úlfur en X977 sendir aftur þá Tomma Steindórs og Ingimar Helga. Lið FM957 sigraði keppnina í fyrra og þá skipuðu þeir Egill Ploder og Rikki G liðið. Kristín Ruth kemur nú inn með Agli. Klippa: Leikið um landið - dagur 1 Ef það er eitthvað sem einkennir keppendur þá er það sigurvissa en öll liðin eru sannfærð um að þau munu sigra keppnina í ár. Kristín og Egill frá FM957 keyra á Volvo í keppninni. „Við ætlum að rústa þessari keppni,“ sagði sigurviss Þórdís Valsdóttir, annar meðlimur Bylgju liðsins þegar hún og Ómar Úlfur sóttu glænýjan Polestar í Brimborg á þriðjudagsmorgun. Um er að ræða 100% rafmagnsbíl og fullyrtu þau bæði að þau væru ekki með hleðslukvíða. Ómar og Þórdís keppa fyrir hönd Bylgjunnar og keyra um glænýjum Polestar. X977 gaurarnir Tommi Steindórs og Ingimar Helgi keyra um á gullfallegum Ford Mustang og eru líka sigurvissir. „Þú stjórnar tónlistinni, ég fæ óskalög og svo keyrum við hringinn og vinnum þessa keppni,“ segir Ingimar. „Þú stjórnar tónlistinni, ég fæ óskalög og svo keyrum við hringinn og vinnum þessa keppni,“ segir Ingimar. Til vinstri er liðsfélagi hans, Tommi Steindórs. „Við ætlum að keyra á kóngabílnum Volvo,“ segir Egill FM957 maður. „Kristín keyrir Volvo dagsdaglega þannig að það hentar okkur ágætlega.“ Þau voru sérstaklega ánægð með græjurnar í bílnum og var fyrsta lagið sér valið, hressandi stuðlag úr Man in Black. Fyrst var stefnan sett á Farmers Bistro, veitingastað Flúðasveppa, þar sem hádegismatur var snæddur og keppt var í sveppatýnslu. Á leiðinni kepptu liðin hins vegar í fyrstu þrautinni sem var spurningakeppni sem innihélt spurningar á borð við: Hvaða heitir hesturinn hennar Línu langssokks. „Langfeti? Léttfeti? Stóri Dan?,“ velti Ingimar fyrir sér. Keppnin í sveppatýnslu var stórskemmtileg og sýndu keppendur glæsileg tilþrif. „Ég er að hlaupa með hníf … er það ekki bannað?,“ sagði Þórdís meðan hún hljóp með fangið fullt af sveppum. Endastöðin var Fosshótel Jökulsárlón þar sem liðin slökuðu á fyrir átök næsta dags auk þess sem farið var yfir Verna skorin. Lið Bylgjunnar leiðir eftir fyrst daginn með fimm stig, FM957 er í öðru sæti með fjögur stig og X977 rekur lestina með þrjú stig. Fylgist með á samfélagsmiðlum útvarpsstöðvanna: @x977, @FM957, @bylgjan.
Leikið um landið Bylgjan FM957 X977 Mest lesið Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bíó og sjónvarp Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Fleiri fréttir „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Sjá meira