„Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“ Jón Ísak Ragnarsson skrifar 30. júní 2024 11:31 Brynjar mun ekki taka þátt í næsta prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Hann segir að ríkisstjórnarsamstarfið sé að kosta Sjálfstæðisflokkinn of mikið fylgi. Flokkurinn hafi gefið of mikið eftir og sé alltaf að „hörfa og tipla á tánum í kringum frekjuna“. Vísir/Vilhelm „Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur, get bara sagt fólki það,“ sagði Brynjar Níelsson fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Þá sagði hann að smáflokkur í ríkisstjórnarsamstarfinu, Vinstri græn, hefði alltof mikil áhrif, og að íslenska stjórnmálamenn vanti þrek og kjark til að gera eitthvað, vitandi það að fullt af fólki muni garga á þau.
Brynjar var viðmælandi dagsins hjá Þórarni Hjartarsyni í þætti dagsins í hlaðvarpinu Ein pæling, þar sem farið var meðal annars yfir stöðuna í stjórnmálunum hér á landi og í Evrópu, útlendingamál, nýju Samfylkinguna og ríkisstjórnarsamstarfið. Flóttamannavandinn verði ekki leystur með því að hleypa öllum að „Við þurfum að leysa flóttamannavandann, öðruvísi en bara að taka við fólki alls staðar að, þar sem er eitthvað vesen. Við þurfum að leysa vandann á heimavelli. Við getum ekki bara skipt um þjóðir í Evrópu sí svona,“ segir Brynjar. Sumt fólkið fyrirlíti jafnvel vestrænt lýðræði og muni aldrei passa inn í evrópsk samfélög. Viktor Orbán er forsætisráðherra Ungverjalands. Útlendingalöggjöfin í Ungverjalandi er með þeim hörðustu í Evrópu.AP/Geert Vanden Wijngaert Hann segir Íslendinga í grunninn vitlausari en Ungverjar þegar kemur að flóttamannavandanum. „Þú getur kallað það harkalegt, en bara þeir ætla bara ekki að taka á sig þennan vanda. Þeir segja bara við höfum enga heimild til þess gagnvart okkar þjóð, að taka á okkur vanda heimsins,“ segir Brynjar. Sjálfstæðismenn í samstarfi og geti ekki tjáð sig eins og Miðflokkur Bynjar segist ekki vita það, hvað sé til ráða til að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn „rasskelli Sjálfstæðisflokkinn“ í næstu kosningum. Hann segir marga Sjálfstæðismenn ánægða með málflutning Miðflokksins að mörgu leyti. „Vandinn er að Sjálfstæðismenn eru í samstarfi, það er vandamálið. Sjálfstæðismenn geta bara því miður ekki tjáð sig eins og Sigmundur gerir. Annars eru þeir sammála að mörgu leyti,“ segir Brynjar. Flokkurinn gefi annars of mikið eftir í samstarfinu, og sé alltaf að „hörfa og tipla á tánum í kringum frekjuna.“ „Við fórum í þessa vegferð, og hún gerir marga Sjálfstæðismenn óánægða, eðlilega.“ Samstarfið hafi kostað flokkinn fylgi, þrátt fyrir þann árangur sem náðst hefur síðusta áratuginn sem flokkurinn hefur verið í ríkisstjórn. Vinstri græn beri af öðrum vinstri mönnum Brynjar segir VG til hróss, hversu vel hafi verið hægt að vinna með þeim í ríkisstjórninni 2017-2021. Þau hafi verið yfirburðarfólk af vinstri vængnum. Það hefði verið vel hægt að vinna með þeim, þau hefðu haft góðan skilning á málunum. Þau væru bara of vinstri sinnuð. „Miðað við aðra vinstri flokka fannst mér þau bera af,“ segir Brynjar. Hann skilji því ekki af hverju fylgið þeirra er komið niður í 3,3 prósent á meðan til dæmis Píratar eru í níu prósentunum, svo ekki sé talað um fylgi Samfylkingarinnar, sem hann segir flokk í fullkominni upplausn. „Kristrún er auðvitað að gera tilraun til að breyta flokknum, en það er ótrúlegt sundurlindi þarna og maður veit ekkert hvernig það endar,“ segir Brynjar. Brynjar segir að Samfylkingin sé flokkur í fulkominni upplausn. Hann telur að heilmikil átök verði á næsta landsfundi flokksins. Margir flokksmenn muni mótmæla nýjum áherslum flokksins í t.d. útlendingamálum.Vísir/Vilhelm Samfylkingin megi vera fegin við að losna við fólk í flokknum sem hefur verið mest „woke“ eða lengst til vinstri, fólk sem hefur verið að týnast úr flokknum upp á síðkastið. „En málið er bara það, að það er fullt af fólki sem ætlar bara ekkert að fara. Fólk sem ætlar að djöflast í þessu. Ég á eftir að sjá Þórunni Sveinbjarnar, Oddnýu Harðardóttur, Helgu Völu og þetta fólk fara,“ segir Brynjar. Hann telur að þetta fólk muni djöflast mikið á næsta landsfundi Samfylkingarinnar, og þar verði heilmikil átök. Hann vonar þó að Kristrún hafi styrk og afl til að breyta Samfylkingunni, sem hafi verið algjörlega komin í kör.
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Sjálfstæðisflokkurinn Flóttafólk á Íslandi Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira