Lífið

Guggur og gúmmíbátur hjá Guggu í gúmmí­bát

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var mikið stuð í 21 árs afmæli Guggu í gúmmíbát.
Það var mikið stuð í 21 árs afmæli Guggu í gúmmíbát. SAMSETT

„Þetta var án efa besti dagur lífs míns,“ segir áhrifavaldurinn Guðrún Svava Egilsdóttir, betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát, sem fagnaði 21 árs afmæli sínu með stæl um helgina á skemmtistaðnum Hax. Patrik, Issi, HubbaBubba og DJ Bjarni K voru meðal tónlistaratriða og að sjálfsögðu var gúmmíbátur á svæðinu.

„Það var svo gaman að halda upp á 21 ára afmælið mitt með öllum vinum mínum. Afmælið mitt er heilagur dagur fyrir mér og ég þarf alltaf að fagna vel. Svo er það bara að toppa sig á næsta ári,“ segir Gugga í samtali við blaðamann.

Gestir voru sumir hverjir í bol með andliti Guggu sem á stóð: Gugga í gúmmíbát. Gestir dönsuðu fram eftir kvöldi og gúmmíbáturinn sló í gegn. 

Hér má sjá vel valdar myndir frá kvöldinu:

Gugga fagnaði 21 árs afmæli sínu með stæl.Einar Einarsson
Ofurskvísur í afmæli Guggu.Einar Einarsson
Raunveruleikastjarnan Patrekur Jaime var á svæðinu.Einar Einarsson
Gugga með guggunum sínum!Einar Einarsson
Issi var í gír.Einar Einarsson
Gugga ásamt Æði raunveruleikastjörnunum og tvíburunum Sæmundi og Gunnari.Einar Einarsson
Gestir gátu rokkað Guggu í gúmmíbát boli.Einar Einarsson
Gúmmíbáturinn vakti lukku á dansgólfinu.Einar Einarsson
Gugga var með sérstakan drykkjaseðil fyrir gesti.Einar Einarsson
Gugga í gúmmíbát!Einar Einarsson
DJ Bjarni K í Guggu bol.Einar Einarsson
Binni Glee og Gugga í faðmlögum.Einar Einarsson
Gugga með Guggustand.Einar Einarsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×