Innlent

Eldur kom upp í Grafar­vogi

Jón Þór Stefánsson skrifar
Eldurinn kom upp í Fossaleyni. Myndin er úr safni.
Eldurinn kom upp í Fossaleyni. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Eldur kom upp í húsnæði í Fossaleyni í Grafarvogi í Reykjavík í dag. Starfsmönnum á vettvangi tókst að slökkva eldinn og svo kom slökkvilið og er að reykræsta húsnæðið.

Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu staðfestir þetta.

Slökkviliði var gert viðvart um málið þegar tuttugu mínútur voru í að klukkan yrði eitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×