Fótbolti

Búið spil hjá fyrir­liðanum en Barcelona má fá nýjan mann

Sindri Sverrisson skrifar
Leikmenn Barcelona sáu strax að eitthvað alvarlegt hafði gerst, þegar fyrirliðinn Marc-André ter Stegen meiddist í gær.
Leikmenn Barcelona sáu strax að eitthvað alvarlegt hafði gerst, þegar fyrirliðinn Marc-André ter Stegen meiddist í gær. Getty/Jose Breton

Þýski markvörðurinn Marc-André ter Stegen mun sennilega ekki spila meira fyrir Barcelona á þessari leiktíð eftir að hann meiddist alvarlega í hné, í 5-1 sigrinum gegn Villarreal í spænsku 1. deildinni í gær.

Strax var ljóst að meiðslin væru alvarleg og nú er komið í ljós að hnéskeljarsin rofnaði sem þýðir að Ter Stegen verður frá keppni í að minnsta kosti sjö til átta mánuði.

Hinn 25 ára gamli Iñaki Peña kom inn á í stað Ter Stegen og kemur til með að verja mark Börsunga, sem farið hafa frábærlega af stað í spænsku deildinni undir stjórn Hansi Flick. Þeir töpuðu hins vegar fyrsta leik sínum í Meistaradeildinni í síðustu viku, 2-1 gegn Monaco.

Ter Stegen er fyrirliði og hefur verið aðalmarkvörður Barcelona um árabil, eða frá 2016, og ljóst að það er mikið áfall fyrir liðið að missa þennan 32 ára markmann út.

Navas, Karius og Vaclik á lausu

Javier Tebas, forseti La Liga, staðfesti í dag að vegna meiðslanna mætti Barcelona kaupa nýjan leikmann þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður. Reglurnar heimila raunar að sá leikmaður þurfi ekki að vera markmaður heldur geti einnig verið útileikmaður. Hængurinn er sá að aðeins er hægt að taka inn leikmann sem ekki er samningsbundinn öðru félagi í dag – annars þarf Barcelona að bíða þar til að félagaskiptaglugginn opnast í janúar.

AS fór yfir stöðuna og taldi upp mögulega kosti fyrir Barcelona. Heitasta nafnið á lausu er líklega Keylor Navas en þessi 37 ára markvörður, sem varð þrisvar Evrópumeistari með Real Madrid, er án félags eftir að hafa kvatt PSG í sumar. Loris Karius, fyrrverandi markvörður Liverpool, og Tékkinn Tomas Vaclik, sem áður lék með Sevilla, eru einnig nefndir, ásamt fleirum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×