Viðskipti innlent

Tekur við stöðu for­stöðu­manns þjónustu hjá Reitum

Atli Ísleifsson skrifar
Margrét Helga Jóhannsdóttir.
Margrét Helga Jóhannsdóttir. Reitir

Margrét Helga Jóhannsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þjónustu hjá Reitum.

Í tilkynningu segir að um sé að ræða nýja stöðu innan félagsins. Margrét komi til Reita frá Íslandsstofu þar sem hún hafi starfað sem rekstrarstjóri og áður sem fagstjóri. 

„Hún býr yfir umfangsmikilli reynslu af stefnumótun og innleiðingu umbóta í rekstri og þjónustu. Margrét Helga er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun og BA gráðu í stjórnmálafræði og frönsku frá Háskóla Íslands.

Reitir kynntu fyrr á árinu nýja stefnu með áherslu á öflugan og sjálfbæran vöxt. Mikilvægur liður stefnunnar er þróun og uppbygging aukins þjónustuframboðs í takti við breyttar þarfir leigutaka. Ráðning Margrétar er lykilþáttur í þessari vegferð en hún mun leiða nýtt þjónustuteymi hjá Reitum,“ segir í tilkynningunni. 

Reitir fasteignafélag hf. er almenningshlutafélag, skráð í Kauphöll síðan 2015. Eigendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×