Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. september 2024 12:33 Channing Tatum og Jenna Dewan kynntust við tökur á Step Up. EPA/MIKE NELSON Skilnaður Hollywood stjarnanna Channing Tatum og Jenna Dewan er genginn í gegn. Sex ár eru síðan þau tilkynntu að þau væru hætt saman og í millitíðinni hafa þau bæði byrjað með öðru fólki.
Bandaríski slúðurmiðillinn PageSix greinir frá þessu. Saman eiga þau eina dóttur, hina ellefu ára gömlu Everly. Þau kynntust á setti dansmyndarinnar Step Up sem kom út árið 2006 þar sem þau fóru bæði með aðalhlutverk. Fram kemur í umfjöllun miðilsins að Dewan hafi sótt um skilnað fyrir sex árum síðan, árið 2018. Þá höfðu þau erið gift í níu ár. Þá tóku við harðar deilur hjónanna um hvernig þau ættu að skipta á milli sín tekjum sínum, þá sérstaklega tekjum Channing Tatum sem hann aflaði sér með Magic Mike myndunum. Dewan sakaði Tatum þannig um tíma að hafa gengið í sameiginlega sjóði þeirra til þess að fjármagna myndina. Á sama tíma sakaði Tatum hana um að hafa tafið skilnaðarferlið um of. Nú er ljóst að þau hafa náð sáttum um málið. Þrátt fyrir að skilnaðurinn hafi ekki gengið í gegn fyrr en nú eru þau Tatum og Dewan löngu komin í önnur sambönd. Tatum er nú trúlofaður leikkonunni og leikstjóranum Zoe Kravitz á meðan Dewan trúlofaðist leikaranum og söngvaranum Steve Kazee árið 2020.
Hollywood Mest lesið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Sjá meira