Skoðun

Er for­svaran­legt að kjósa Fram­sóknar­flokkinn?

Reynir Böðvarsson skrifar

Ég ætla ekki sjálfur að kjósa Framsóknarflokkinn en hvet þá sem ekki geta hugsað sér að kjósa Sósíalistaflokkinn eða Pírata að gera það, sérstaklega ykkur í mínu kjördæmi, Suðurkjördæmi þar sem Halla Hrund Logadóttir skipar fyrsta sætið. Hugsið ykkur bara möguleikann á því að Halla Hrundi verði umhverfis- orku- og loftlagsráðherra í næstu ríkisstjórn, hvílík trygging það væri að skynsamlega verði farið með þessa málaflokka þar sem almannahagsmunir verða hafðir að leiðarljósi. Aldrei hefur mér dottið í hug að skrifa pistil til stuðnings Framsóknarflokknum en ég geri það nú, vegna þess að hæfari manneskju en Höllu Hrund er ekki hægt að hugsa sér í lagasmíð kringum okkar dýrmætu orkuauðlindir sem og umhverfis og loftlagsmál. Ég vil líka hrósa Sigurði Inga fyrir að láta eftir fyrsta sætið í kjördæminu til Höllu Hrundar, ég held að það sé einstakt drengskapar bragð í íslenskri stjórnmálasögu og á hann heiður skilið fyrir það. Þar setur hann hagsmuni flokksins og jafnvel þjóðarinnar ofar eigin hagsmunum.

Við þekkjum öll Höllu Hrund úr kosningabaráttunni til embætti forseta í vor sem leið, og ég studdi hana heilshugar og hefði gjarnan séð hana sem Forseta Íslands. Ég vissi að ráðherra málaflokksins hafði áætlun um að leggja niður embætti orkumálastjóra og sameina ýmsar ríkisstofnanir, mig grunaði að hennar hreinskilni og ákveðni að halda með almannahag gagnvart ásælni auðmanna gæti hafa haft eitthvað með það að gera. Margir bentu þá á að embætti forseta gæti lítið aðhafst í þessum málaflokki annað en að setja umdeild lög í þjóðaratkvæðisgreiðslu og það er líklega rétt. Halla Hrund vill nýta þekkingu sína og reynslu til þess að hafa áhrif á hvernig þessum mikilvægu málum verður hagað í framtíðinni, að almannahagur verði leiðarljós en ekki græðgi auðmanna. Að hún velur að fara fram fyrir Framsóknarflokkinn var óvænt en líklega snjallt þar sem Framsóknarflokkurinn lendir nánast alltaf í ríkisstjórn hvernig sem kosningar fara, og líklegt að forysta flokksins láti ekki frá sér þetta tækifæri að færa fram einstaklega hæfa og réttsýna manneskju í stól umhverfis- orku- og loflagsráðherra.

Halla Hrund skrifaði eftirfarandi í pistli sem birtist í Vísi í gær:

„Það sem knýr mig til þátttöku á sviði stjórnmálanna eru auðlindamálin. Þar stöndum við á mikilvægum tímamótum, og ég tel það vera skyldu mína að leggja mitt af mörkum til að tryggja að auðlindir okkar séu nýttar á skynsaman og sanngjarnan hátt og að ábati þeirra renni til samfélagsins. Ég vil vera vakin og sofin yfir verðmætunum sem við eigum í einstakri náttúrunni og þeim ólíku nytjum sem hún gefur; fyrir komandi kynslóðir um ókomna tíð. Ég bið um stuðning ykkar til að geta unnið að þessum málum.”

Þið sem eruð á kjörskrá í Suðurkjördæmi og getið ekki hugsað ykkur að kjósa Sósíalistaflokkinn eða Pírata hafið þarna góðan valkost.

Höfundur er jarðskjálftafræðingur.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×