Skorinn með hníf á skemmtistað í miðbænum Jón Þór Stefánsson skrifar 2. nóvember 2024 07:26 Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Lögreglan var kölluð út að skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur í nótt vegna slagsmála. Lögreglu barst tilkynning um að hnífur hefði verið dreginn upp og einn einstaklingur skorinn með honum.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en þar segir að grunaður árásarmaður hafi fundist skömmu síðar og honum gert að gista í fangageymslu. Í umdæmi Lögreglustöðvar þrjú, sem sér um Kópavog og Breiðholt, var lögreglan kölluð út vegna líkamsárásar þar sem nokkrir veittust að einum. Í dagbókinni segir að sá sem hafi orðið fyrir árásinni hafi hlotið einhverja áverka og að málið sé í rannsókn. Þá er greint frá tveimur málum í umdæmi lögreglustöðvar eitt, sem sér um Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnes. Annars vegar hafði lögreglan afskipti af manni sem var að áreita starfsfólk verslunar. Fram kemur að maðurinn hafi verið ölvaður og hann neitað að fara af svæðinu þegar lögreglu bar að garði. Hann var handtekinn, fluttur á lögreglustöð og sektaður vegna málsins. Hins vegar var lögreglan kölluð til vegna einstaklings sem var ofurölvi og til vandræða á skemmtistað. Þegar lögregla kom á vettvang og færa átti einstaklinginn í lögreglubifreiðina er hann sagður hafa sparkað í einn lögreglumanninn.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira