Glóru­laus Mings kostaði Villa

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Tyrone Mings í leik kvöldsins.
Tyrone Mings í leik kvöldsins. Rene Nijhuis//Getty Images

Aston Villa komst ekki á topp Meistaradeildar Evrópu eftir 1-0 tap gegn Club Brugge á útivelli. Sigurmarkið kom eftir að Tyrone Mings, miðvörður Villa, fékk á sig glórulausa vítaspyrnu.

Staðan var markalaus í hálfleik en snemma í þeim síðari ákvað Mings á einhvern óskiljanlegan hátt að taka boltann upp með höndum í eigin vítateig. Vítaspyrna eðlilega dæmt og úr henni skoraði Hans Vanaken það sem reyndist sigurmark kvöldsins. 

Þetta var fyrsta markið sem Villa fær á sig í Meistaradeildinni en liðið er nú með níu stig að loknum fjórum leikjum. Club Brugge hefur á sama tíma unnið tvo leiki og tapað jafn mörgum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira