Innherji

Controlant klárar milljarða fjár­mögnun með að­komu líf­eyris­sjóða og Arion

Hörður Ægisson skrifar
Daninn Søren Skou, fyrrverandi forstjóri skipaflutningarisans AP Moller-Maersk, tók við sem nýr stjórnarformaður Controlant í byrjun árs en Gísli Herjólfsson er forstjóri félagsins. Søren segir félagið í einstakri stöðu til að umbylta aðfangakeðju lyfja á heimsvísu og skapa verðmæti fyrir hagaðila Controlant.
Daninn Søren Skou, fyrrverandi forstjóri skipaflutningarisans AP Moller-Maersk, tók við sem nýr stjórnarformaður Controlant í byrjun árs en Gísli Herjólfsson er forstjóri félagsins. Søren segir félagið í einstakri stöðu til að umbylta aðfangakeðju lyfja á heimsvísu og skapa verðmæti fyrir hagaðila Controlant.

Tæknifyrirtækið Controlant, sem hefur glímt við rekstrarerfiðleika að undanförnu, hefur lokið við samanlagt um 35 milljóna Bandaríkjadala fjármögnun, einkum með nýju hlutafé frá nokkrum lífeyrissjóðum og láni frá Arion. Stjórnarformaður Controlant segir að þótt kaup- og innleiðingaferli alþjóðlegra lyfjarisa á stafrænni tækni og rauntímavöktun hafi tafist þá sé félagið bjartsýnt á framhaldið enda í „einstakri stöðu“ til að umbylta aðfangakeðju lyfja.


Tengdar fréttir

Hluturinn í Controlant er „stærsta ó­vissan“ í eigna­safni Sjó­vá

Ef Sjóvá hefði vitað um þau viðbótarréttindi sem fjárfestar fengu við útboð Controlant í árslok 2023, sem ver þá fyrir umtalsverðri gengislækkun í yfirstandandi hlutafjáraukningu, þá hefði tryggingafélagið ekki bókfært virði hlutarins hjá sér miðað við gengið 105 krónur á hlut, segir forstöðumaður fjárfestinga. Stjórnendur Sjóvá merkja aukna samkeppni í tryggingarstarfseminni eftir að einn af keppinautum félagsins, VÍS, sameinaðist Fossum fjárfestingabanka.

Controlant frestar hlut­hafa­fundi að beiðni hóps ó­á­nægðra hlut­hafa

Stjórn Controlant hefur fallist á beiðni hóps hluthafa um að fresta hlutafundi félagsins, sem átti að fara fram á morgun, um eina viku þannig að þeim gefist tími til að koma fram með breytingartillögur fyrir fundinn. Veruleg óánægja hefur verið í röðum margra stórra einkafjárfesta með þá tillögu að fara í hlutafjárhækkun í því skyni að verja þá fjárfesta sem komu inn í síðasta hlutafjárútboði félagsins fyrir þeirri lækkun á hlutabréfaverði sem er að óbreyttu væntanleg í yfirstandandi útboðsferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×