Hugmyndir Ingu séu aðför að kjörum alls vinnandi fólks Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. nóvember 2024 15:12 Hugmyndir Ingu Sæland falla í grýttan jarðveg hjá bæði alþýðufólki og atvinnurekendum. Vísir/Hjalti Hugmyndir formanns Flokks fólksins um að sækja níutíu milljarða á ári með aukinni skattheimtu á innborganir í lífeyrissjóði hafa orðið til þess að Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífs sameina krafta sína. Það gera forseti ASÍ og formaður SA í aðsendri grein á Vísi. Algengara er að heyra forsvarsfólk samtakanna tveggja tala í kross til dæmis í tengslum við kjarasamninga. „
Lífeyriskerfi Íslendinga stendur vel og er sjálfbært. Við skulum standa vörð um eitt besta lífeyriskerfi í heimi og ekki láta skammtímasjónarmið raska grundvallarstoð kerfisins,“ segja Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, og Eyjólfur Árni Rafnsson formaður Samtaka atvinnulífsins í greininni. Hugmyndir um skattheimtu á innborganir séu aðför að kjörum og velferð lífeyristaka og vinnandi fólks til framtíðar. Þeir segja að undanfarið hafi ýmsar hugmyndir verið reifaðar um hvernig bæta megi afkomu ríkissjóðs og fjármagna brýn verkefni. Inga lýsti áformum sínum í dögunu þegar hún sagðist ætla að „taka níutíu milljarða af lífeyrissjóðunum á hverju einasta, einasta, einasta ári.“ Þetta sagði hún munu verða gert með því að skattleggja iðgjöld sem greidd eru í lífeyrissjóði þegar þau eru greidd, en ekki við útgreiðslu úr sjóðunum. Væru afturför lífeyrismála Finnbjörn og Eyjólfur Árni nefna ekki formann Flokks fólksins nafni en eru augljóslega að vísa til hugmynda hennar. „Ein þeirra lýtur að því skattleggja iðgjald til lífeyrissjóðanna við inngreiðslu í stað þess að greiða skatt af lífeyri þegar hann kemur til útgreiðslu. Hafa þessar hugmyndir verið kynntar sem einhvers konar töfralausn, fundið fé sem hvorki muni hafa áhrif á afkomu lífeyrisþega né afkomu ríkissjóðs til framtíðar. Það er alrangt. Slíkar hugmyndir væru ekkert minna en afturför lífeyrismála á Íslandi og upptaka á vandamálum sem margar aðrar þjóðir standa frammi fyrir með verulega neikvæðum áhrifum á kjör eldra fólks og útgjöld hins opinbera,“ segja Finnbjörn og Eyjólfur Árni. Meginkostur íslenska lífeyriskerfisins sé að hver kynslóð standi undir eigin lífeyri og hluta þeirrar þjónustu sem hún njóti með skattgreiðslum af honum. „Þetta er einkar mikilvægt nú þegar miklar breytingar eru að verða á aldurssamsetningu þjóðarinnar, fólki á vinnualdri fækkar og lífeyristökum fjölgar. Í dag eru um sex vinnandi einstaklingar á móti hverjum eftirlaunataka. Viðbúið er að eftir 25 ár verði einungis þrír vinnandi á móti hverjum eftirlaunataka.“ Lífeyrisgreiðslur yrðu óhjákvæmilega lægri Í dag greiði atvinnurekendur og launafólk reglulega af launum í lífeyrissjóði fyrir hvern starfsmann. „Við inngreiðslu er fjárhæðin ekki skattlögð, heldur látin ávaxtast óskert þar til taka lífeyris hefst. Lífeyristakar greiða því skatt þegar þeir taka eftirlaun sín út úr lífeyrissjóðum. Þannig nýtist lífeyrir ekki eingöngu til framfærslu lífeyristaka heldur fjármagnar við útgreiðslu með sköttum samneyslu samfélagsins á hverjum tíma. Sé þessi skattur innheimtur á meðan fólk er á vinnumarkaði er ljóst að framtíðarkynslóðir munu bera mun þyngri skattbyrði en ella eða að opinber þjónusta verður af skornari skammti. Breyting í þessa veru hefði því í reynd í för með sér að hluta lífeyrissparnaðarins yrði breytt úr sjóðsöfnun í gegnumstreymi sem væri í hrópandi mótsögn við tilgang lífeyriskerfisins og allar alþjóðlegar ráðleggingar til áratuga.“ Óhjákvæmilega verði lífeyrisgreiðslur úr lífeyrissjóðum lægri ef lægra hlutfall iðgjalda sé ávaxtað hjá lífeyrissjóðum. „Þetta mun þýða að framtíðarútgjöld í almannatryggingakerfinu, sem fjármögnuð eru með skatttekjum á hverjum tíma, verða hærri, sem enn mun þyngja skattbyrði komandi kynslóða eða rýra verulega kjör lífeyristaka framtíðarinnar.“ Tilflutningur á skattbyrði milli kynslóða Þeir minna á að íslenska lífeyriskerfið hafi verið byggt upp af framsýni og hafi staðist tímans tönn. „Það sést best á því að lífeyrissjóðirnir standa undir meginhluta lífeyristekna almennings sem stöðugt fara vaxandi. Alþjóðlega er litið til okkar þegar kemur að árangri við að tryggja afkomu lífeyristaka og ekki síst hvað varðar sjálfbærni lífeyriskerfisins til framtíðar. Lífeyriskerfið er margþætt og stendur frammi fyrir ýmsum áskorunum og verkefnið nú sem hingað til að halda áfram að bæta kerfið og vera vakandi fyrir því sem gera má betur. Ekki síst þegar kemur að því að standa vörð um hagsmuni sjóðfélaga bæði í nútíð og framtíð.“ Hugmyndir um skattlagningu lífeyrisiðgjalds við inngreiðslu sé ekki hluti af því verkefni því þær séu í reynd tillaga um stórkostlegan tilflutning á skattbyrði á milli kynslóða og aðför að kjörum og velferð hvort tveggja lífeyristaka og vinnandi fólks til framtíðar.
Kosningapróf - Kjóstu rétt Taka prófið Lífeyrissjóðir Alþingiskosningar 2024 Kjaramál Tengdar fréttir Inga muni varpa efnahagslegum gjöreyðingarvopnum Hugmyndir Ingu Sæland um að sækja níutíu milljarða á ári með aukinni skattheimtu á innborganir í lífeyrissjóði hafa farið öfugt ofan í ýmsa. Varaþingmaður segir Ingu lýsa því hvernig hún muni „varpa efnahagslegum gjöreyðingarvopnum á framtíðarkynslóðir“ og formaður Samfylkingar telur áformin feigðarflan. 7. nóvember 2024 11:57 Mest lesið Ætla ekki að aðstoða hundruð manna í lokaðri námu Erlent Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Innlent Hugmyndir Ingu séu aðför að kjörum alls vinnandi fólks Innlent Sósíalistar mælast inni og Vinstri græn í lífshættu Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Áfram séreign inn á lánin og ekkert kílómetragjald í bili Innlent Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent „Leið eins og ég hefði verið kýld í magann þegar ég las þetta“ Innlent Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent Tilnefning Gaetz sem dómsmálaráðherra vekur furðu og reiði Erlent Fleiri fréttir Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Málaferlin auki gildi verksins og hann sé hvergi af baki dottinn Bein útsending: Utanríkisstefna á umbrotatímum Refsing milduð í stóra skútumálinu Sósíalistar færu ekki í stjórn sem ætlaði að selja Íslandsbanka Hugmyndir Ingu séu aðför að kjörum alls vinnandi fólks Hjúkrunarfræðingar hafa skrifað undir samning Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu: Skýr mörk á milli hægri og vinstri Lýsa eftir konu með heilabilun Samherji lagði listamanninn Odee Myndband sýnir umfang skriðanna í Eyrarhlíð Fimm sveitarstjórnarfulltrúar í Strandabyggð beðist lausnar Sósíalistar mælast inni og Vinstri græn í lífshættu Þinglok strax eftir helgina Glæný Maskínukönnun kynnt í hádegisfréttum Sammála um níkótínpúðana en ekki áfengissöluna Áfram séreign inn á lánin og ekkert kílómetragjald í bili Flateyringum ráðlagt að sjóða neysluvatn Maðurinn sem lögregla lýsti eftir er fundinn „Leið eins og ég hefði verið kýld í magann þegar ég las þetta“ „Nei, Áslaug Arna“ Grænlendingar fá Erling til að gera Grænland grænna Rúmar hundrað milljónir í þágu barna í Mosfellsbæ Sjá meira
Inga muni varpa efnahagslegum gjöreyðingarvopnum Hugmyndir Ingu Sæland um að sækja níutíu milljarða á ári með aukinni skattheimtu á innborganir í lífeyrissjóði hafa farið öfugt ofan í ýmsa. Varaþingmaður segir Ingu lýsa því hvernig hún muni „varpa efnahagslegum gjöreyðingarvopnum á framtíðarkynslóðir“ og formaður Samfylkingar telur áformin feigðarflan. 7. nóvember 2024 11:57
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent