Innlent

Vill að borgin út­búi skýrar leið­beiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Hildur Björnsdóttir fagnar framtakinu mjög.
Hildur Björnsdóttir fagnar framtakinu mjög. Ívar Fannar

Borgarfulltrúi minnihlutans vill að Reykjavíkurborg útbúi skýrar leiðbeiningar fyrir þá vinnustaði sem vilja fara sömu leið og Arion banki og bjóða upp á daggæslu á vinnustað. Eðlilegt væri að borgin tryggi mótframlag í verkefnið.

Í gær var greint frá því að Arion banki ætli um áramótin að opna daggæslu fyrir börn starfsmanna. Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi fangar framtakinu mjög enda hefur hún lengi talað fyrir daggæslu á stórum vinnustöðum en segir þær hugmyndir sínar ekki hafa fengið framgöngu hjá stjórnsýslu borgarinnar.

„Það sem ég myndi vilja gera í framhaldinu er að borgin útbúi mjög skýran ramma og skýrar leiðbeiningar fyrir þá vinnustaði sem gætu hugsað sér að opna svona úrræði svo það sé aðgengilegt því ég hef heyrt í nokkuð mörgum fyrirtækjum sem gætu hugsað sér annað eins sem eru bara í vandræðum með að fá starfsfólk til baka eftir fæðingarorlof.“

Ekki leikskóli

Framtakið sé dæmi um hvernig einkaframtakið geti verið hluti af lausn í daggæslumálum.

„Þetta er auðvitað daggæsla, ekki leikskóli. Þannig þetta er meira í líkingu við dagforeldraúrræði nema þarna er búið til, eins og í tilfelli Arion banka á að vanda mjög til verka við að hanna flott, öruggt og gott umhverfi fyrir börnin sem þarna verða og ég veit þau gera miklar kröfur og ætla sér að gera þetta vel.“

Hugmyndin spretti upp vegna vandræðagangs í leikskólamálum.

„Við erum að sjá að á hverju hausti eru átta hundruð til þúsund börn á biðlista og þannig hefur það verið mjög lengi. Því miður hefur leikskólaplássum í Reykjavík fækkað um þúsund yfir síðasta tíu ára tímabil þannig vandamálið því miður hefur ekki verið að leysast á síðustu árum og við þurfum að horfa út fyrir kassann.“

Borgarstjóri segist í færslu á Facebook fagna framtakinu og gerir ráð fyrir að Reykjavíkurborg komi að verkefninu þegar það er fullmótað.

„Mér þætti eðlilegt að borgin myndi tryggja sama mótframlag með börnum sem fá daggæslu þarna eins og hjá dagforeldrum þannig það þarf að ganga úr skugga um að svo verði,“ segir Hildur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×