Veður

Stinning­skaldi og él fram í miðja viku og svo kólni frekar

Eiður Þór Árnason skrifar
Gufustrókar frá Hellisheiðarvirkjun í morgunsárið.
Gufustrókar frá Hellisheiðarvirkjun í morgunsárið. vísir/vilhelm

Gular viðvaranir vegna hríðarveðurs gilda fram eftir morgni á Norðurlandi eystra, Austfjörðum og Austurlandi að Glettingi. Viðvörun vegna hvassviðris eða storms gildir á Suðurausturlandi fram til klukkan 16 í dag. 

Þar er spáð norðvestan 15 til 23 metrum á sekúndu og vindhviðum yfir 30 metrum á sekúndu, hvassast austantil. Varasamt ferðaveður er í öllum landshlutum þar sem viðvörun gildir.

Á landinu í dag er spáð norðvestan 15 til 25 metrum á sekúndu, hvassast suðaustantil, en hægari vestanlands. Snjókoma á Norður- og Austurlandi, en þurrt á sunnanverðu landinu. Hiti um eða undir frostmarki.

Dregur úr vindi og ofankomu í dag. Norðan 8 til 15 metrar á sekúndu í kvöld og á morgun og él, en yfirleitt léttskýjað sunnan heiða. Kólnandi veður, frost 2 til 8 stig á morgun.

Rok vegna djúprar lægð fyrir austan land

Í nótt hefur verið norðvestan stormur eða rok á svæðinu frá Melrakkasléttu og til suðurs um Austurland og að sunnanverðum Vatnajökli. Einnig hefur verið hríðarveður norðan- og austanlands. Þessu veldur djúp lægð fyrir austan land ásamt hæð yfir Grænlandi, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands.

Lægðin fjarlægist í dag og veður skáni smám saman. Undir kvöld verði vindur orðinn víða á bilinu 8 til 15 metrar á sekúndu (kaldi eða stinningskaldi) með éljum fyrir norðan- og austan, en bjart sunnan heiða.

Að sögn veðurfræðings helst þetta veður áfram út morgundaginn og virðist í raun eiga að haldast með litlum breytingum fram í miðja næstu viku. Þá kólni með þrálátri norðanátt og megi búast við frosti á bilinu 3 til 10 stig fyrripart næstu viku.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag, mánudag, þriðjudag og miðvikudag: Norðanátt, víða 8-15 m/s og él, en yfirleitt þurrt og bjart sunnan heiða. Frost 2 til 10 stig.

Á fimmtudag: Sunnan 3-10 vestast á landinu og líkur á dálítilli snjókomu. Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt annars staðar og bjart með köflum. Áfram kalt í veðri.

Á föstudag: Líkur á norðanátt með éljum fyrir norðan, en léttskýjað sunnantil. Frost um allt land.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×