Innlent

Vélsleðaslys í Lang­jökli

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna vélsleðaslyss við Langjökul.
Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna vélsleðaslyss við Langjökul. Vísir/Vilhelm

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna vélsleðaslyss við Langjökul. Talið er að tveir séu slasaðir.

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfesti þetta í samtali við fréttastofu.

Landhelgisgæslunni barst tilkynning laust upp úr fjögur vegna slyssins og tók þyrlan á loft um hálf fimm, að sögn Ásgeirs.

Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×