Fékk tæknivillu fyrir að horfa á mótherja Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2024 06:30 Russell Westbrook var skiljanlega ekki sáttur með tæknivilluna sína en það má greinilega ekki lengur stara á mótherja á körfuboltavellinum. Getty/Justin Ford Russell Westbrook átti góðan leik með Denver Nuggets þegar liðið vann Memphis Grizzlies í NBA deildinni í körfubolta í fyrrinótt en hann fékk líka afar sérstaka tæknivillu í leiknum.
Westbrook byrjaði illa á sínu fyrsta tímabili með Denver en þetta er allt að koma og hann var með þrennu af bekknum í þessum leik, skoraði 12 stig, tók 10 fráköst og gaf 14 stoðsendingar. Westbrook kom sér líka í vandræði hjá dómara leiksins sem henti á hann tæknivillu í leiknum. Tæknivilluna fékk hann þegar rúm mínúta var eftir af þriðja leikhlutanum og Denver var sautján stigum yfir. Dómarinn var þá eitthvað ósáttur við augnaráð Westbrook í átt að andstæðingi eftir að hafa skorað góða körfu. Westbrook fékk nefnilega tæknivilluna hreinlega fyrir að horfa á mótherja eða réttara sagt stara á andstæðing sinn í stutta stund áður en hann hljóp til baka. Engin orð og engin tákn eða merki. Augnaráðið var nóg til að dómarinn gaf honum tæknivillu eins og sjá má með því að fletta hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by SportsCenter (@sportscenter)
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Mikil spenna fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira