Fimmtíu ár frá Kvennafrídeginum árið 2025 Matthildur Björnsdóttir skrifar 9. desember 2024 18:00 Hinn magnaði dagur árið 1975 Grein Drífu Snædal lýsir öllum lögum og viðhorfum sem þurfa að breytast og eru mikilvæg. Samt vantar ýmis mikilvæg atriði í að þau geti Í raun orðið að fullum veruleika í allri hegðun þjóðarinnar. Atriðin sem auðvitað þurfa að gerast allsstaðar og áframhaldandi niður kynslóðirnar. Hér í Ástralíu eru auglýsingar um að innprenta um mikilvægi samþykkis til kynmaka. „That Consent is a must“. Ef börn eru ekki frædd og alin upp til að eiga og upplifa sjálfsvirði og skilning á eigin tilfinningum og hugsunum. Og mikilvægi þess að skilja getnaðarfærakerfin sín og til hvers þau séu, og þá um að hafa góðar ábyrgar umferðareglur um hegðun sína og aga um þau. Og mikilvægi þess að virða aðra, eru sum af mikilvægu atriðunum. Það sem ég hugsaði og lét mig dreyma um á degi Kvennafrídagsins árið 1975 var: Að foreldrar myndu skipta vinnuvikunni á milli sín svo að börnin sæju að bæði kyn kynnu að gera það allt að sinna heimilisstörfum og ala börnin upp. Það var þá. Fyrir hálfri öld síðan, og ótal breytingum í heiminum. Mín hugsun var frá því að hafa vitnað of marga hjálparlausa karlmenn sem kunnu ekkert í heimilisverkum, né að elda mat. Og auðvitað af því að þá var ég gift manni sem kunni ekki að skipta um á rúmi, né vinna nein heimilisverk, en var góður í tæknigeiranum. Ekkert líkamlegt ofbeldi gerðist, bara þörf hans fyrir að vera séð um hvað varðaði þau atriði. Hann neitaði að sjá um börnin þann daginn, þó að hann væri ekki að fara í vinnuna þann daginn. Svo að þau komu með mér í gönguna. Ég vaknaði til að sjá að samband sem hafði ekki komið til á réttum forsendum yrði að enda. Ég vildi hinsvegar, þá tveim árum seinna. Að sá sem ég hafði verið gift til ársins 1977 myndi vera með í dæminu, að ná í þau og vera með þeim. En það gerðist bara í örfá skipti. Hann var þá farinn á önnur mið. Það voru engin orð frá yfirvöldum að feðrum bæri skylda að sinna börnum sínum eftir skilnað. En þeir sluppu ekki við meðlögin. Þá voru engin lög né viðhorf né krafa frá yfirvöldum til þess að skylda að feðrum væri annt um að börnin sín. Og væru ekki að upplifa þá erfiðu tilfinningu höfnunar sem gerist og fer djúpt ef og þegar faðir þeirra sýndu og sýna þeim engan áhuga, og elska þau ekki. Það voru hugsanlega leifar þá frá yfirvöldum að þetta með börn væri bara fyrir konur. Föðurleysi skapar oft upplifun á höfnun, og sú upplifun á það til að skapa ýmis mis-vinsæl hegðunar atriði. Svo að börn sem áttu foreldra sem skildu, urðu auðvitað meira vanrækt en hefði átt að vera. Og slík atriði spila svo oft inn í hegðun þeirra kynslóða og inn í kynslóð þeirra sem eiga í erfiðleikum í dag. Það eru hin undirliggjandi atriði sem hafa ekki endilega fengið vinnslu í einstaklingunum. Einstaklingum sem hafi upplifað allskonar tegundir af mismeðferð sem er frá skorti á nægum þroska og innsæi í sálfræði barna af foreldra hálfu. Foreldra sem fengu það ekki heldur. Hegðun og viðhorf sem enginn skildi þá að hefði slæm áhrif í þeim. Til dæmis: Ef börnum og þá kynjum er ekki kennt með samræðum frá unga aldri að bera virðingu fyrir sjálfum sér. Finna út í sér hver þeirra djúpu verðgildi fyrir líf sitt séu. Og kennt allt um getnaðarfæra kerfin, svo að þau lendi ekki í óvelkomnu dæmi og ástandi. Fyrir drengi að vita það líka og að bera virðingu fyrir litlum stelpum, unglings stelpum. Svo þegar þær eru orðnar nokkuð eldri eða „full-orðnari“ sem er afstætt ástand. Að lítil börn og unglingar sem eru ekki komin þangað í sjálfum sér að skilja afleiðingar kynlífs, eru ekki til að hafa kynmök við. Ferðin til eins fulls persónulegs þroska og hægt er, er langt ferli Moya Sarner skrifaði frábæra bók sem heitir „When I grow up“. Í henni eru viðtöl við marga háskóla lærða og aðra. Einstaklinga á ýmsum aldri sem sögðu að þau áttuðu sig á því, að þrátt fyrir menntun sína og störf í þeim. Þá sæu þau að það væri nokkuð í að þau væru það sem væri talið að kallast „Grown up“. Fullorðin á þessu máli. Orð sem kom með þeirri ályktun að við teldumst það þegar við værum komin með getnaðarfærakerfin í gang og orðin sautján eða átján ára. Það er bara goðsögn. Svo mikið í lífi einstaklinga sem tala um erfiða reynslu staðfestir það sem þessir einstaklingar í bók Moya Sarner sögðu. Ég vitnaði ekki þá fullkomnun sem orðið „Fullorðinn“ á að bera með sér í nærri öllum foreldrum sem ég vitnaði. Það varð þá til þess að ég fékk ekki að upplifa í friði hvað líf mitt ætti að verða um. Það er snúin uppskrift og klípa sem endar ekki alltaf eins og ætlað er. Ef sjálfs upplifun og sjálfsstyrkur er ekki ofinn í öll taugakerfi og vitsmuni barna frá upphafi til þess tíma sem þau verða, það sem er kallað sjálfráð. Þá eru mun meiri líkur á að stjórn hormóna og óheflaðra tilfinninga á líðandi stundu fái að taka ráðin, og er það sorglegt. Þau atriði lenda svo stundum á borðum dómskerfa landsins og kosta mikið. Sú staðreynd að í dag er dýrtíðin svo mikil að fáir foreldrar hafa tækifæri til að vera nógu lengi með börnum sínum. Þá er ég ekki að tala um fæðingar orlofin, heldur áframhaldandi nægan tíma til að fræða börn sín í réttum skömmtum um öll þessi grundvallar atriði. Dýrtíðin kemur í veg fyrir það, og skapar það að börnin alist meira upp í hópum. Hópar næra ekki á nærri öllum sviðum, þeir eru mest kennsla í að verða félagsverur. Hin mikilvæga nándar tenging við foreldrin á það til að smá dofna, og þá þegar hormónar rísa, eru þau oft umkomulaus nema ástargrunnur hafi vírast inn í þau frá botninum og upp. Reynsla mín og sýn í lífinu: Er að of mikil áhersla á rökhyggjuna eina eins og ég man eftir að væri séð sem dyggð, deyfir hjörtun sem þá lamar tilfinningarnar. Ég veit að ég fékk of mikið af þeim skammti og þekki marga sem hafa sömu sögu að segja. Höfundur er Íslendingur sem hefur verið búsettur í Ástralíu um langan tíma. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Matthildur Björnsdóttir Mest lesið Ert þú ung kona á leiðinni á landsfund? Hópur ungra Sjálfstæðiskvenna Skoðun Dagur sjaldgæfra sjúkdóma 2025 Alice Viktoría Kent Skoðun Háskóladagurinn og föðurlausir drengir Margrét Valdimarsdóttir Skoðun En hvað með mig kórinn: Eiga kennarar að vera lægsti samnefnari launaþróunar Davíð Már Sigurðsson Skoðun Guðrún Hafsteinsdóttir til forystu Hópur Sjálfstæðismanna Skoðun Vill ríkisstjórnin vernda vatnið okkar? Snæbjörn Guðmundsson Skoðun Loðnukreppan: Fleiri hvalir þýða meiri fiskur Micah Garen Skoðun Glötuðu tækifærin Guðmundur Ragnarsson Skoðun Tækifærin felast í hjúkrunarfræðingum Helga Rósa Másdóttir Skoðun Guðrún Hafsteins nýr leiðtogi - Sameinandi afl Jóna Lárusdóttir Skoðun Skoðun Skoðun COVID-19: 5 ár frá fyrsta smiti Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Meira um íslenskan her skrifar Skoðun Sannanir í dómsmáli? Huldufyrirtæki og huldusögur Jörgen Ingimar Hansson skrifar Skoðun Guðrún Hafsteinsdóttir til forystu Hópur Sjálfstæðismanna skrifar Skoðun Háskóladagurinn og föðurlausir drengir Margrét Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Björn Þorsteinsson er gefandi og gagnrýninn stjórnandi fyrir öflugan Háskóla Íslands Nanna Hlín Halldórsdóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir skrifar Skoðun En hvað með mig kórinn: Eiga kennarar að vera lægsti samnefnari launaþróunar Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Vandi Háskóla Íslands og lausnir – III – Fjármögnun háskóla Pétur Henry Petersen skrifar Skoðun Loðnukreppan: Fleiri hvalir þýða meiri fiskur Micah Garen skrifar Skoðun Tölum um það sem skiptir máli Flosi Eiríksson skrifar Skoðun Hvernig borg verður til Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Vill ríkisstjórnin vernda vatnið okkar? Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Tækifærin felast í hjúkrunarfræðingum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Ert þú ung kona á leiðinni á landsfund? Hópur ungra Sjálfstæðiskvenna skrifar Skoðun Dagur sjaldgæfra sjúkdóma 2025 Alice Viktoría Kent skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn – Breiðfylking framtíðar Sigvaldi H. Ragnarsson skrifar Skoðun Guðrún Hafsteins nýr leiðtogi - Sameinandi afl Jóna Lárusdóttir skrifar Skoðun Látum verkin tala Sigríður María Björnsdóttir Fortescue skrifar Skoðun Guðrún Hafsteinsdóttir, leiðtogi með sterka framtíðarsýn Jón Ólafur Halldórsson skrifar Skoðun Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, seinni grein Jörgen Ingimar Hansson skrifar Skoðun Glötuðu tækifærin Guðmundur Ragnarsson skrifar Skoðun Hnignun samgangna og áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf Sverrir Fannberg Júliusson skrifar Skoðun Ísland á tímamótum – Við skulum leiða gervigreindaröldina! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað eru Innri þróunarmarkmið? Þuríður Helga Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hagur okkar allra Steinþór Logi Arnarsson skrifar Skoðun Áskoranir næstu áratuga kalla á fjármögnun rannsókna Silja Bára R. Ómarsdóttir skrifar Skoðun Ég styð Guðrúnu Hafsteinsdóttur sem formann – en hvers vegna? Karl Guðmundsson skrifar Skoðun Smíðar eru nauðsyn Einar Sverrisson skrifar Skoðun Nýsköpunarlandið Elías Larsen skrifar Skoðun Sagnaarfur Biblíunnar – Móse og boðorðin 10 Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Sjá meira
En hvað með mig kórinn: Eiga kennarar að vera lægsti samnefnari launaþróunar Davíð Már Sigurðsson Skoðun
Skoðun Björn Þorsteinsson er gefandi og gagnrýninn stjórnandi fyrir öflugan Háskóla Íslands Nanna Hlín Halldórsdóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir skrifar
Skoðun En hvað með mig kórinn: Eiga kennarar að vera lægsti samnefnari launaþróunar Davíð Már Sigurðsson skrifar
Skoðun Hnignun samgangna og áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf Sverrir Fannberg Júliusson skrifar
En hvað með mig kórinn: Eiga kennarar að vera lægsti samnefnari launaþróunar Davíð Már Sigurðsson Skoðun