Íslandsmet hjá strákunum en Snæfríður missti af sæti í úrslitum Sindri Sverrisson skrifar 15. desember 2024 12:16 Guðmundur Leó Rafnsson, Snorri Dagur Einarsson, Birnir Freyr Hálfdánarson og Símon Elías Statkevicius settu Íslandsmet í 4x100 metra fjórsundi á HM. SSÍ Fremsta sundkona landsins, Snæfríður Sól Jórunnardóttir, var nokkuð frá Íslandsmeti sínu í dag þegar hún lauk keppni á HM í 25 metra laug með sinni aðalgrein, 200 metra skriðsundi.
Íslandsmet Snæfríðar er 1:54,23 og það hefði nægt henni í dag til að vera meðal þeirra átta sem syntu í úrslitum 200 metra skriðsundsins. Snæfríður synti hins vegar á 1:55,48 og endaði í 14. sæti. Áður hafði hún tvíbætt Íslandsmet sitt í 100 metra skriðsundi og endað í 13. sæti. Árangur Snæfríðar stendur upp úr á mótinu en hún var einnig í tveimur sveitum Íslands sem settu Íslandsmet í blönduðu boðsundi, í 4x50 metra skriðsundi og í 4x100 metra fjórsundi. Á lokadegi í HM var svo fimmta Íslandsmetið sett þegar sveit Íslands setti met í 4x100 metra fjórsundi karla. Íslensku strákarnir bættu Íslandsmetið um rúmar fimm sekúndur þegar þeir syntu á tímanum 3:33,68 mínútum, en gamla metið hafði staðið síðan árið 2016. Sveit Íslands skipuðu þeir Guðmundur Leó Rafnsson, Snorri Dagur Einarsson, Birnir Freyr Hálfdánarson og Símon Elías Statkevicius, og þeir urðu í 23. sæti. Guðmundur Leó bætti svo tíma sinn í 200 metra baksundi í dag þegar hann synti á 1:55,27, en gamli tíminn hans var 1:55,79. Guðmundur Leó nálgast nú óðfluga 25. ára gamalt unglingamet Arnar Arnarssonar sem er 1:54,23. Hann varð í 25 sæti, á sínu fyrsta stórmóti.
Sund Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Fleiri fréttir KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni Leik lokið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Njarðvík - Valur | Geta Njarðvíkingar rétt skipið af? Höttur - ÍR | Hörkuleikur fyrir Austan Grindavík - Stjarnan | Stórliðin þurfa sigur Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Matthías hættur hjá Val Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Ömurleg menning hjá Man. Utd Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Er skrefareglan dauð í NBA? Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Sjá meira