Hátíðlegt en afslappað á tíu ára afmælinu Feitt ehf. 19. desember 2024 12:48 Tíunda árið í röð slá Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius upp hátíðarveislu í Eldborgarsal Hörpu. Þú vilt ekki missa af þessari árlegu jólaveislu! Mynd/Ari Magg. Tíunda árið í röð slá Sigurður Guðmundsson og & Sigríður Thorlacius upp hátíðarveislu í Eldborgarsal Hörpu. Tónleikarnir eru fyrir löngu orðnir að ómissandi þætti margra í aðdraganda jólanna en þeir verða haldnir daginn fyrir Þorláksmessu.
Það þarf ekki að kynna Sigríði Thorlacius og Sigurð Guðmundsson fyrir landsmönnum en þau hafa lengi verið á meðal þekktustu og dáðustu söngvara landsins. Bæði hafa þau gert garðinn frægan með hljómsveitum sínum, Sigríður með Hjaltalín og Sigurður með Hjálmum, en jafnframt státa þau af glæstum sólóferlum. Árið 2020 gáfu þau út saman plötuna Það eru jól og var hún mesta selda plata jólanna það árið, en hún inniheldur m.a. lög sem hafa sérstaklega komið út fyrir hina árlegu jólatónleika. Hér má hlýða á lagið Notalegt, í lifandi flutningi í Eldborgar sal á síðasta ári. Sigríður man vel eftir undirbúningi fyrir fyrstu tónleikana sem voru haldnir árið 2015. „Við vissum ekkert við hverju var að búast þannig lagað. Þá áttum við hvort um sig jólaplötu í farteskinu og þótti kjörið að leiða saman hestana. Svo bara var gaman og gekk vel og við endurtókum leikinn ári síðar. Og nú eru liðin öll þessi tíu ár.“ Platan Það eru jól verður í forgrunni á tónleikunum í Hörpu, ásamt tveimur hljómplötum þeirra Sigríðar og Sigurðar, jólaplöturnar Nú stendur mikið til með Sigurði og Jólakveðja með Sigríði. Auk laga af þessum plötum verða á dagskránni hátíðarlög úr öllum áttum sem Sigurður og Sigríður munu syngja bæði saman og í sitthvoru lagi. Það var frábær stemning á jólatónleikunum á síðasta ári.Mynd/Owen Fiene. „Við njótum síðan krafta nokkurra frábærra félaga sem hafa með nokkrum undantekningum fylgt okkur þennan áratug. Enda bara með svo algjörlega frábært band! Guðmundur okkar Óskar er hljómsveitarstjóri og spilar á bassa, á trommur er Matti Hemstock, Daníel Friðrik spilar á gítar, Hjörtur Ingvi á píanó og Tómas Jónsson leikur á orgel. Svo er það sjálfur jólamarengsinn: blásarakvintettinn Sammi, Óskar, Stefán Jón, Kjartan og Snorri. Það má því segja að það sé valinn maður í hverju sæti.“ Mynd/Owen Fiene. Tónleikarnir skipa stóran sess í hjörtum margra en hvað með sjálfa þig? Eru þeir einn af hápunktum ársins? „Þeir eru það vissulega og marka upphaf jóla hjá okkur. Tónleikarnir eru svona þessi dásamlega stund sem við eigum með hverju öðru, bandinu okkar og fjölda fólks sem kemur ár eftir ár. Og alltaf er efst í huga þakklætis fyrir að yfir höfuð fá að gera þetta.“ Nýlega kom út nýtt jólalag með þeim sem heitir Ekkert blóð og fær að sjálfsögðu að hljóma í Hörpu næstu helgi. „Við höfum haft þann sið að gefa út nýtt lag í aðdraganda hverra tónleika og safna þannig í sarpinn. Siggi samdi þetta fallega ákall um betri heim, meiri kærleika og minna stríð. Ég held að allir hugsandi menn viti hvaðan sú hugsun sprettur.“ Einvala lið tónlistarmanna hefur fylgt Sigga Guðmunds og Siggu Thorlacius á jólatónleikunum undanfarinn áratug. Mynd/Owen Fiene. En verða þessir tónleikar eitthvað öðruvísi en fyrri tónleikar ykkar? „Við erum stolt af því að geta boðið upp á prógramm sem saman stendur svo gott sem einungis af okkar eigin músík og lögin safnast svo upp eftir því sem árunum fjölgar. Það er ákveðin kjölfesta sem er sú sama en alltaf kemur eitthvað nýtt inn og þá eðli máls samkvæmt fer annað út. En andinn og yfirbragðið er það sama. Hátíðlegt en afslappað. Og vonandi skilar það sér svo yfir til fólksins.“ Tónleikarnir verða 22. desember í Hörpu. Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 16 og þeir síðari kl. 20. Miðasala fer fram á Tix og á vef Hörpu.
Tónlist Menning Jól Mest lesið Telur notkun á lagi í Miðflokks-stuðningsmyndbandi siðlausa Lífið Heldur ótrauð áfram þrátt fyrir að ná ekki milljónamarkmiðinu Lífið Stjörnulífið: „Ég get ekki frestað þessu lengur“ Lífið Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Lífið Melanie Watson er látin Lífið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Áskorun „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Fleiri fréttir Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 króna Mikils virði að gefa fólki frelsi til að velja Fjölbreyttir jólasmáréttir frá Kjarnafæði Snéru upp á klassískt jólalag Jólaundirbúningurinn byrjar í KiDS Coolshop Augnablikin sem urðu að minni þjóðar Setningar sem eiga skilið innrömmun Konráð kveður á mildan hátt Helvítis jólapizzan slær í gegn á Eldofninum Íslensk nauta- og sælkeratólg slær í gegn Sú besta hingað til Sjórinn er enn á sínum stað Þroskuð húð fær aukinn ljóma Mzungu þýðir ekki annað en trúgjörn bráð Amor svífur yfir Norðurlandi Aftenging í sítengdum heimi Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Metsölulisti og enn betra bókaverð í Nettó Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Sjá meira