Sport

Komnir með upp í kok: „Seldu liðið“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Bræðurnir Patrick McCaskey, varaforseti Bears, og George McCaskey, stjórnarformaður. Þeir eru ekki vinsælir þessi dægrin.
Bræðurnir Patrick McCaskey, varaforseti Bears, og George McCaskey, stjórnarformaður. Þeir eru ekki vinsælir þessi dægrin. Michael Reaves/Getty Images

Stuðningsmenn Chicago Bears í NFL-deildinni vestanhafs hafa ekki haft miklu að fagna þessi jólin. Eða þetta allt þetta tímabil, raunar. Algjörlega vonlaus leikur liðsins við Seattle Seahawks í nótt tók botninn úr.

Mikil eftirvænting var fyrir yfirstandandi leiktíð hjá Bears-liðinu. Liðið átti fyrsta valrétt í nýliðavalinu og valdi leikstjórnandann Caleb Williams og fékk að auki útherjann Rome Odunze í níunda vali. Þeir voru á meðal tveggja eftirsóttustu bitanna á markaðnum.

Útherjinn Keenan Allen, sem hafði gert góða hluti með Los Angeles Chargers, kom einnig til liðsins og átti að sjá fyrir því að nýliðinn Caleb Williams hefði úr nægum vopnum að velja sóknarlega. Spennan í upphafi tímabils snerist fljótt í gremju.

Þjálfarinn Matt Eberflus var rekinn í lok nóvember þegar Chicago hafði aðeins unnið fjóra leiki af tólf. Brottrekstur Eberflus var sögulegur. Í 104 ára sögu Bears er hann fyrsti þjálfarinn sem er rekinn á miðju tímabili.

Ekki hefur gengið betur eftir að framkvæmdastjórinn Ryan Poles réði Thomas Brown til bráðabirgða út leiktíðina. Birnirnir hafa tapað öllum fjórum leikjunum undir hans stjórn.

Fjórða tapið var agalegur fótboltaleikur sem fram fór á Soldier Field í Chicago í nótt. Seattle Seahawks unnu þar 6-3 sigur í vonlausum leik. Tvö vallarmörk gegn einu réðu úrslitum í leik þar sem liðin þurftu tólf sinnum að sparka boltanum frá sér.

Gremjan sýndi sig hjá stuðningsmönnum Bears sem hafa kallað eftir brottrekstri Poles, en virðast nú einnig hafa glatað trausti sínu til eigendanna. „Seldu félagið“ heyrðist kallað af stuðningsmönnum Bears á Soldier Field í gær.

Virginia Halas McCaskey keypti Chicago Bears árið 1983, en sú er orðin 101 árs gömul. Börn hennar reka liðið í dag en virðist sem Bears-stuðningsmenn vilji McCaskey-fjölskylduna nú á brott.

Bears sækja erkifjendur sína í Green Bay Packers heim í lokaleik tímabilsins á nýju ári. Fátt virðist ætla að koma í veg fyrir stórtap liðsins þar gegn Packers-liði sem flýgur í úrslitakeppnina.

Í efri spilaranum má sjá allt það helsta úr leik Bears og Seahawks í nótt. Þar er ekki mikið að sjá. Í þeim neðri má sjá er stór hluti stuðningsmanna á Soldier Field krefjast sölu á félaginu.

Farið verður yfir alla leiki síðustu umferðar í NFL-deildinni til Lokasókninni sem er á dagskrá klukkan 20:00 á Stöð 2 Sport 2 í kvöld.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×