Erlent

Tveir látnir eftir skot­bar­daga í Noregi

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Tveir eru látnir, meðal annars lögreglumaður.
Tveir eru látnir, meðal annars lögreglumaður. Getty

Tveir eru látnir eftir skotbardaga í sveitarfélaginu Klepp í Noregi. Annar þeirra var almennur borgari og hinn lögreglufulltrúi.

Lögreglu var um klukkan eitt í nótt tilkynnt um mann á fertugsaldri sem hafði í hótunum við aðra. 

Skotbardagi hófst milli lögreglu og mannsins sem endaði með þeim hætti að hann og tveir lögregluþjónar urðu fyrir skotum. Allir voru fluttir á slysadeild og lést maðurinn og annar lögregluþjónninn af sárum sínum í nótt. 

Lögreglumaðurinn sem lést var einungis um tvítugt. 

Sá þriðji sem varð fyrir skoti er einnig lögreglufulltrúi og segir í frétt NRK að ekki sé vitað hversu alvarlega særður hann er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×