Körfubolti

Sá þriðji í sögunni til að spila full­kominn leik

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Russell Westbrook var ótrúlegur í nótt.
Russell Westbrook var ótrúlegur í nótt. Alex Goodlett/Getty Images

Russell Westbrook varð í nótt þriðji leikmaður NBA sögunnar til að skila af sér þrefaldri tvennu, án þess að tapa boltanum eða klikka á skoti, í 132-121 sigri Denver Nuggets gegn Utah Jazz.

Westbrook endaði leikinn með 16 stig, 10 fráköst og 10 stoðsendingar. Hann hitti sjö af sjö skotum utan af velli og tveimur af tveimur skotum af vítalínunni.

Þetta var 201. þrefalda tvennan á ferli Westbrook, sem er það mesta í sögu deildarinnar. Honum hafði einu sinni tekist áður að ná þrefaldri tvennu á hundrað prósent skotnýtingu, en aldrei gert það án þess að tapa boltanum.

Hann slæst þar með í hóp með liðsfélaga sínum Nikola Jokic, sem gerði slíkt hið sama þann 20. október 2018 í leik gegn Phoenix Suns, og Domantas Sabonis sem lék afrekið eftir 6. nóvember síðastliðinn í leik með Sacramento Kings gegn Toronto Raptors. Samkvæmt ESPN.

„Hann var fenginn hingað af einni ástæðu og það er til að hjálpa okkur að vinna titilinn. Hann hatar að tapa, og við elskum það við hann. Ég myndi fara í stríð með Russell Westbrook hvenær sem er,“ sagði þjálfarinn Michael Malone eftir leik.

Nuggets sitja nú í sjötta sæti deildarinnar átján sigra og þrettán töp. Jazz er í fjórtánda sæti með aðeins sjö sigra.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×