Erlent

Tíma­bært að Græn­land taki skref í átt að sjálf­stæði

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Múte B. Egede er formaður grænlensku landsstjórnarinnar.
Múte B. Egede er formaður grænlensku landsstjórnarinnar. Vísir/Vilhelm

Formaður grænlensku landsstjórnarinnar segir að stór skref verði tekin í átt að sjálfstæði Grænlands á nýju ári og að nauðsynlegt sé að Grænlendingar fái sína eigin stjórnarskrá. Árið 2025 er kosningaár á Grænlandi en í ár verður kosið um sæti á Inatsisartut, þjóðþinginu, og í sveitarstjórnum.

Þetta er meðal þess sem fram kom í nýársræðu Múte B. Egede, formanns landsstjórnar Grænlands, samkvæmt grænlenska miðlinum Sermitsiaq.

Trump blæs í glæðurnar

Málefni Grænlands hafa verið til umræðu víða um heim eftir að Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseti, vakti aftur máls á eignarhaldi landsins til framtíðar. Á sama tíma og Grænlendingar hyggjast taka frekari skref í átt að sjálfstæði blæs Trump í glæður milliríkjadeilu Bandaríkjanna og Danmerkur um eignarhald eyjunnar.

Sjá einnig: Segir Grænland ekki falt

Trump tilkynnti á dögunum nýjan sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku og sagði þar að eignarhald og yfirráð yfir Grænlandi væru nauðsynleg með tilliti til þjóðaröryggis Bandaríkjanna.

Tímabært að taka mikilvæg skref

Múte B. Egede fór ekki í grafgötur með það hver afstaða grænlensku landsstjórnarinnar væru til þessara ummæla. Hann sagði Grænland ekki falt og verði aldrei.

Í nýársræðu sinni segir hann Grænlendinga eina eiga landið og að þeir einir taki ákvarðanir um framtíð þess.

„Það er tímabært að við tökum mikilvæg skref í átt að sjáflstæðu landi. Við getum ekki haldið áfram með þá seinvirku vinnu sem fer fram í gegnum danska ríkið hvað löggjafarvald á Grænlandi varðar.“

„Það er hér sem grænlenska þjóðin verður að taka afstöðu og ákveða hvort Grænland skuli taka næstu skref í átt að sjálfstæðu landi. Komandi kjörtímabil ætti því að vera kjörtímabil þar sem grænlenska þjóðin tekur ákvörðun um hvernig Grænland skuli líta út í framtíðinni,“

Múte gerði jafnframt grænlenska stjórnarskrá að umfjöllunarefni sínu. Hann sagði það að Grænland lúti danskri stjórnarskrá gera vinnu löggjafarvaldsins seinláta og óskilvirka.

„Eins og það er nú, þar sem Grænland heyrir undir danska ríkið sem sjálfsstjórnarland, er vinnuferlið óskilvirkt. Það er nauðsynlegt að við ryðjum þessum hindrunum úr vegi og komum í kring betri verkferlum í landi okkar,“ sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×