Erlent

Eldar loga í LA og neyðar­á­standi lýst yfir

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Eldurinn magnaðist á undraskömmum tíma og fjöldi húsa er nú brunninn til kaldra kola, eins og þetta einbýlishús í Pacific Palisades hverfinu.
Eldurinn magnaðist á undraskömmum tíma og fjöldi húsa er nú brunninn til kaldra kola, eins og þetta einbýlishús í Pacific Palisades hverfinu. AP Photo/Ethan Swope

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Los Angeles, næst stærstu borg Bandaríkjanna vegna skógar- og kjarrelda sem á skömmum tíma í gær fóru verulega úr böndunum.

Rúmlega þrjátíu þúsund manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín og þrettán þúsund byggingar eru í hættu á að verða eldinum að bráð. Nú þegar hefur kviknað í nokkrum einbýlishúsum í hverfinu Pacific Palisades og á myndum má sjá íbúa flýja bíla sína á hlaupum áður en eldhafið gleypir þá. Engar fregnir hafa þó borist af manntjóni.

Eldurinn kviknaði um kvöldmatarleytið að íslenskum tíma í gær en mikill vindur á svæðinu varð þess valdandi að hann sótti mjög í sig veðrið. Eftir nokkrar klukkustundir var staðan orðin þannig að eldarnir brunnu stjórnlaust á um 1500 hektara landsvæði.

Nýjustu fregnir herma svo að annar eldur hafi kviknað, um fjörutíu kílómetra frá hinum og því er ljóst að ástandið getur enn versnað. Að minnsta kosti 200 þúsund manns eru nú án rafmagns á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×