Innlent

Lög­reglan hljóp uppi ólátabelg í nótt

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Það var óvenjurólegt hjá lögreglunni í gærkvöldi og í nótt miðað við oft áður. Kannski var það færðin.
Það var óvenjurólegt hjá lögreglunni í gærkvöldi og í nótt miðað við oft áður. Kannski var það færðin. Vísir/Vilhelm

Lögreglunni bárust nokkrar tilkynningar um ólæti og slagsmál í nótt. Í miðbænum var manni hent út af skemmtistað vegna „óláta“ en sá flúði svo af vettvangi þegar lögregluna bar að garði. Viðkomandi var eltur uppi og handtekinn.

Kvöldið var óvenjurólegt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu miðað við oft áður ef marka má hina svokölluð dagbók lögreglu yfir mál kvöldsins og næturinnar. Mest var að gera hjá lögregluþjónum á Lögreglustöð 1 sem nær yfir Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnes.

Lögreglan var kölluð til vegna líkamsárásar en þá var gerandi farinn af vettvangi. Málið er þó enn til rannsóknar samkvæmt lögreglu.

Þá barst lögreglunni einnig tilkynning um slagsmál fyrir utan skemmtistað þar sem einstaklingi hafði verið hent út vegna „óláta“. Viðkomandi reyndi að flýja þegar lögreglan kom á vettvang en maðurinn var eltur uppi og handsamaður að lokum. Þá var annar handtekinn sem hafði verið með ógnandi tilburði við samborgara sína í miðbænum. Hann var fluttur niður á lögreglustöð þar sem tekin var af honum skýrsla.

Loks var ökumaður stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum örvandi efna en hann reyndist þar að auki ekki vera með gild ökuréttindi.

Rúða brotin og búðarhnupl

Utan miðborgarinnar og nágrannahverfa var harla rólegt að gera. Á lögreglustöð 4 sem nær yfir Mosfellsbæ, Grafarvog og Árbæ var til að mynda ekkert fréttnæmt.

Hins vegar voru lögregluþjónar af lögreglustöð 2, sem nær yfir Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, kallaðir til vegna eignaspjalla. Rúða hafði þar verið brotin í heimahúsi og er málið nú í rannókn.

Á lögreglustöð 3, sem nær yfir Kópavog og Breiðholt, var sömuleiðis bara eitt mál sett í skýrslu en þar var lögregla kölluð til vegna þjófnaðar í verslun. Málið var leyst með skýrslutöku á vettvangi. Ekki kemur fram í hvoru sveitarfélaginu hnuplið átti sér stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×