Innlent

Nýtt hljóð­merki bílaeigendum til ama

Rafn Ágúst Ragnarsson og Bjarki Sigurðsson skrifa
Runólfur Ólafsson er formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda.
Runólfur Ólafsson er formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Vísir/Ívar Fannar

Það getur reynst dýrkeypt að slökkva á viðvörunarhljóðum í bílum. Nýtt hljóðmerki er mörgum til ama, en besta leiðin til að losna við það er að aka á réttum hraða.

Píphljóð í bílum koma af mörgum ástæðum. Maður gæti verið að keyra með handbremsuna á eða ekki lokað skottinu nægilega vel. Bíllinn lætur mann vita ef maður hefur gleymt að fara í belti eða opnað hurðina án þess að slökkva á ljósunum. Og nú bætast ný og fleiri við í flóruna.

Samkvæmt nýrri reglugerð Evrópusambandsins er bílaframleiðendum skylt að láta bílinn gefa frá sér hljóð þegar ekið er yfir hámarkshraða. Það er hægt að slökkva tímabundið á hljóðmerkinu en stillingin endurræsir sig í hvert sinn sem kveikt er á bílnum á ný. Þetta er gert til að stuðla að auknu öryggi í umferðinni.

Margir hafa kvartað yfir þessari nýju breytingu og segja hljóðin trufla þegar það á ekki við.

„Margir kvarta yfir því að þetta sé mjög svo truflandi. Sérstaklega ef þetta er að pípa í tíma og ótíma þá hættir viðkomandi að taka eftir þessu,“ segir Runólfur Ólafsson formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda

Hérna pípir hann einmitt því ég var á fimmtíu götu sem varð að þrjátíu og ég var ekki nógu fljótur að hægja á mér. Þarna kemur á móti að þú verður alveg meðvitaður ef þú hefur ekki verið með fulla athygli við aksturinn að þú ert kominn á götu sem er með lægri hámarkshraða en gatan sem þú varst á.

Í Evrópu eru dæmi um að ökumenn sem slökkva á hljóðinu og lenda í slysinu fái skertar eða engar bætur frá tryggingafélaginu. Því segir Runólfur að besta ráðið til að losna við það sé einfaldlega að aka á réttum hraða.

Og í framtíðinni gæti þessi búnaður nýst í fleiri verkefni.

„Menn sjá líka fyrir sér að innan ekki svo langs tíma verði hugsanlega hægt að grípa inn í og setja á ákveðnum svæðum allan hraða niður þannig að ökumenn geti ekki farið yfir ákveðinn hámarkshraða. Það gæti til dæmis verið ákveðið í Kvosinni í Reykjavík að yrði 30 kílómetra hámarkshraði og um leið og bíllinn fer inn í ákveðið svæði þá kemst bíllinn ekki hraðar en þrjátíu kílómetra.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×