Einstakur bíll sem erfitt gæti verið að toppa Tork gaur 17. janúar 2025 11:02 James Einar Becker er Tork gaur og í þáttunum reynsluekur hann allskonar bílum. Splunkuný þáttaröð af Tork gaur rauk í gang hér á Vísi í vikunni. Í fyrsta þætti skoðar James Einar Becker Volvo EX90, sjö sæta rafmagnsjeppa og hefur þetta að segja um bílinn.
Volvo EX90 er 7 sæta rafmagns jeppi sem fólk hefur beðið eftir með óþreyju í nokkur ár og á íslenskum markaði er bílnum ætlað að keppa við bíla eins og KIA EV9. Volvo EX90 Ultra AWD er annar af tveimur útgáfum í boði af bílnum. Hann kostar ca 16.8 milljónir og er rétt rúmum tveimur milljónum dýrari en KIA EV9, sem er fullkomlega góður bíll og ekki margt út á hann að setja en Volvo EX90 hefur það þó fram yfir hann að vera ekki í laginu eins og múrsteinn. Og svo það að hann er einfaldlega Volvo og þegar þú kaupir Volvo ertu að fjárfesta í stöðutákni og lúxus. EX90 sjö sæta rafmagnsjeppinn frá Volvo er lúxuskerra. Snöggur af 7 manna bíl að vera Volvo EX90 Ultra AWD hefur að geyma 408 hestöfl og skilar 770 Nm af togi. Þetta gerir það að verkum að hann fer frá 0 upp 100 km/klst á 5,9 sekúndum. Ekki að það sé einhver haldbær mælistika á það hversu gagnlegur bíllin er en engu að síður athyglisvert í ljósi þess að þetta er þungur 7 manna fjölskyldu bíll. Uppgefin drægi bílsins af framleiðanda við bestu mögulegu akstursskilyrðum eru 614 km. Öll helstu þægindi Í fjarska er bíllin nauðalíkur stóra bróður sínum XC90. En þeir eiga samt ekkert meira sameiginlegt en sætafjöldann. Skýrasta dæmið sem endurspeglar það eru málin. Volvo EX90 er 10 sm lengri og 3 sm lægri en XC 90. Volvo EX90 kemur með öllum helstu þægindum sem fólk getur búist við af bíl í þessum flokki. Það er hiti í sætum að framan og aftan og geta farþegar í fram í einnig notið þess að vera með nudd í sætinu. Plássið í þriðju röðinni er mjög gott þó það þrengi að fólki sem er yfir 190 sm á hæð en fyrir börn og unglinga er plássið feyki nóg. Það má einnig finna allar helstu nauðsynjar aftur í eins og USB-C tengi, flöskuhaldara og miðstöð. Bíllinn kemur einnig með aðfellanlegum krók og getur bíllinn dregið 2,2 tonn. EX90 kemur með öllum helstu þægindum sem fólk getur búist við af bíl í þessum flokki. Mjúkur og þægilegur í akstri Fjöðrun bílsins er nánast á fullkomnum stað fyrir stóran fjölskyldubíl. Þegar keyrt er á opnum þjóðvegi er hann mjög mjúkur og þægilegur. Samt kann hann vel að tækla beygjur og aðrar ójöfnur án þess að ökumaður fái það á tilfinningunni að hann sé staðsettur á vatnsdýnu. Það allra besta við bíllinn er samt hversu gott er að sitja í honum. Sætin grípa vel um mann og eru á pari við góðan hægindastól sem hefur þann bónus að vera með virkilega gagnlegt nudd. Einn öruggasti bíll Volvo Þegar kemur að öryggi gæti Volvo EX90 mögulega verið fremstur meðal jafningja. Á þaki bílsins er bunga sem tengir hugann við leigubíl í London. En í þessari bungu má finna svokallaðan „lidar“ skanna sem nemur brotnar og heilar línur á vegum sem og umferð akandi og gangandi vegfarenda. Í framtíðinni áætlar Volvo að EX90 muni uppfæra sig með tækni sem gerir bílnum kleift að keyra sig svo gott sem sjálfur. Maður fær það á tilfinninguna að Volvo er enn þá mjög öruggur staður að vera á! Er Volvo EX90 besti bíll sem Volvo hefur framleitt? Það er mögulega smekksatriði og er einfaldasta leiðin til að skera úr um það að reynsluaka honum sjálfur hjá umboði Volvo á Íslandi. Hann er allavega flaggskipið og getur Volvo verið einstaklega stolt af útkomunni. Sænski bílaframleiðandinn hefur sett markið hátt og tekist að framleiða einstakan bíl sem erfitt gæti verið að toppa. Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinn í spilaranum hér fyrir neðan:
Bílar Vistvænir bílar Tork gaur Mest lesið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Lífið Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Lífið Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni Bíó og sjónvarp Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Lífið Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Gagnrýni Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Lífið Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Tónlist Fleiri fréttir Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Húð- og feldumhirðuvörur sem draga úr ofnæmisvöldum frá hundum og köttum Hárlos hjá körlum: Hvað veldur og hvernig er hægt að grípa inn í? Nýr rafbíll BMW afhjúpaður í Hörpu Tannhjálp sinnir nauðsynlegri neyðarþjónustu tannlækna Nú er rétti tíminn til að huga að útisvæðinu „Sumarið byrjar hjá okkur“ Eva Laufey segir Hagkaup tilbúið í björtustu dagana Gerðu pallinn og svalirnar að uppáhaldsstað sumarsins! Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið