Jóna Þórey, sem tekur til starfa í ráðuneytinu í febrúar, hefur starfað hjá Rétti lögmannsstofu frá árinu 2022. Þá hefur hún verið stundakennari í meistaranámi við lagadeild Háskóla Íslands á sviði umhverfisréttar. Hún starfaði á sviði samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun sumarið 2021, að því er segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Hún útskrifaðist með BA- og meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands þar sem hún var jafnframt forseti Stúdentaráðs frá 2019 til 2020. Sat hún í skipulagsteymi Loftslagsverkfallanna á sama tíma. Árið 2022 útskrifaði Jóna Þórey með láði frá Edinborgarháskóla í Skotlandi þar sem hún nam mannréttindalögfræði. Lagði hún meðal annars áherslu á rétt til umhverfis í því námi.
Jóna Þórey var ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðnum á sviði mannréttinda frá 2020 til 2022. Hún hefur einnig setið í ýmsum stjórnum og nefndum, þar á meðal stjórn Menntasjóðs námsmanna frá 2022 til 2024 og sem varamaður í loftslagsráði frá 2019 til 2023.
Áður hafði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ráðið Lárus M. K. Ólafsson, lögfræðing, sem aðstoðarmann sinn. Lárus var meðal annars yfirlögfræðingur Orkustofnunar frá 2008 til 2011.