Misstu niður for­ystu þrátt fyrir að vera manni fleiri

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Albert Guðmundsson og félagar eru sigurlausir í síðustu sex leikjum í ítölsku úrvalsdeildinni.
Albert Guðmundsson og félagar eru sigurlausir í síðustu sex leikjum í ítölsku úrvalsdeildinni. getty/Image Photo Agency

Ekkert gengur hjá Alberti Guðmundssyni og félögum í Fiorentina þessi dægrin. Í dag gerði liðið 1-1 jafntefli við Torino í ítölsku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að vera manni fleiri í tæpan klukkutíma.

Albert var í byrjunarliði Fiorentina en var skipt af velli þegar fjórtán mínútur voru til leiksloka.

Á 33. mínútu fékk Ali Dembélé, leikmaður Torino, sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir að handleika boltann. 

Fiorentina var ekki lengi að nýta sér liðsmuninn því fimm mínútum eftir rauða spjaldið skoraði Moise Kean og kom heimamönnum yfir. Kean hefur verið drjúgur í vetur en hann er kominn með tólf mörk í ítölsku úrvalsdeildinni.

Þrátt fyrir að vera manni fleiri tókst Fiorentina ekki að landa sigrinum því Gvidas Gineitis jafnaði metin í 1-1 á 70. mínútu og þar við sat.

Fiorentina er án sigurs í síðustu sex deildarleikjum sínum og er í 6. sæti með 33 stig. Torino er í 11. sæti með 23 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira