Handbolti

Mögu­lega leik­þáttur hjá Egyptum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson segir íslenska liðið þurfa að gleyma Slóvenaleiknum en byggja á frammistöðuna gegn Egyptum.
Snorri Steinn Guðjónsson segir íslenska liðið þurfa að gleyma Slóvenaleiknum en byggja á frammistöðuna gegn Egyptum. Vísir/Vilhelm

„Það versta sem við gerum er að staldra við þennan leik og fara að hrósa okkur of mikið,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, og á þar við sigur Íslands á Slóveníu í fyrrakvöld. Öll einbeiting er á Egyptum sem strákarnir mæta í kvöld.

„Þú getur ekki verið uppi í hæstu hæðum. Þetta var nú bara riðillinn sko, það er nóg eftir og ekkert búið að gerast nema að við erum með fjögur stig. Mikið fram undan og erfiðir leikir,“ segir Snorri Steinn.

Klippa: Mögulega leikþáttur hjá Egyptum

Búast má við töluvert frábrugðnum leik en þeim sem strákarnir spiluðu við Slóvena. Egyptar eru allt öðruvísi lið, en að sama skapi vill Snorri halda í einkenni íslenska liðsins.

„Auðvitað þurfum við að hafa okkar identity á hreinu en við þurfum líka að geta aðlagað það að öðrum. Það er alveg rétt að þetta er öðruvísi lið. Töluvert frábrugðið því sem Slóvenar gera. Það er gríðarleg vigt í þessu, þeir eru þungir, stórir og sterkir. Þeir geta skotið fyrir utan og eru með frábæran línumann sem er mjög erfitt að eiga við,“ segir Snorri og bætir við:

„Við þurfum að fara yfir eitt og annað og vera tilbúnir í það. En á sama tíma, það sem þarf að vera eins, er að við þurfum að spila okkar varnarleik, helst, á okkar forsendum. Að við séum að sækja hlutina frekar en að vera að bíða eftir því sem Egyptarnir ætli að gera,“ segir Snorri Steinn.

Líkt og greint var frá á Vísi í fyrradag gáfu Egyptar það út að stórskyttan Dodo yrði ekki með í milliriðlinum. Það munar um minna en þegar eru tveir í hans stöðu frá. Snorri segir þó geta verið að Egyptar séu að setja upp leikþátt og geti verið að Dodo verði klár í slaginn.

„Alveg örugglega. Þetta er frábær leikmaður og einn af þeirra lykilmönnum. Það hefur eflaust einhver áhrif. Kannski er þetta einhver póker, ég veit það ekki, við þurfum líka að gera ráð fyrir honum. Þetta er bæði gott og slæmt hvað undirbúninginn varðar. En þeir eru með fullt af leikmönnum, sem kannski ekki allir þekkja,“ segir Snorri Steinn.

Fleira kemur fram í viðtalinu sem má sjá í spilaranum.


Tengdar fréttir

„Það er einhver ára yfir liðinu“

Aron Pálmarsson missti af fyrsta leik Íslands á HM vegna meiðsla og í fyrstu átti hann ekkert að spila fyrr en í milliriðlinum. Sem betur fer náði hann heilsu fyrr og hefur verið frábær.

„Ég spurði mömmu nú ekki hvað fór þeim á milli“

Gísli Þorgeir Kristjánsson kveðst ekki vita hvað fór á milli móður hans Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, og Hassan Moustafa, forseta Alþjóðahandknattleikssambandsins, á leik Íslands og Slóveníu í gær. Gísli gat þó notið dagsins með fjölskyldunni í Zagreb.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×