Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Hér varð hrun Íþróttadeild Vísis skrifar 24. janúar 2025 21:55 Flestir leikmenn íslenska liðsins léku undir pari í kvöld. vísir/vilhelm Eftir að hafa unnið fyrstu fjóra leiki sína á HM á íslenska karlalandsliðið í handbolta allt í einu litla möguleika á að komast í átta liða úrslit eftir stórt tap fyrir Króatíu, 32-26, í Arena Zagreb í kvöld. Strákarnir hans Dags Sigurðssonar mættu gríðarlega einbeittir til leiks og drógu strax tennurnar úr okkar mönnum. Ekki stóð steinn yfir steini í varnarleik Íslands í fyrri hálfleik og markverðirnir vörðu aðeins samtals tvö skot í honum. Sóknarleikurinn var líka afleitur gegn sterkri 5-1 vörn Króatíu. Þá varði Dominik Kuzmanovic frábærlega í króatíska markinu. Heimamenn voru átta mörkum yfir í hálfleik, 20-12, og ljóst að brekkan yrði brött fyrir okkar menn í seinni hálfleik. Þeir máttu aðeins tapa með þremur mörkum eða minna til að sigur gegn Argentínumönnum myndi örugglega duga til þess að komast í átta liða úrslit. Viktor Gísli Hallgrímsson kom aftur í markið í seinni hálfleik og varði þá frábærlega, alls þrettán skot, en allt annað var í sömu molum og í fyrri hálfleik. Íslendingar ógnuðu aldrei forskoti Króata sem unnu á endanum sex marka sigur, 32-26. Ísland þarf núna að vinna Argentínu í lokaumferð milliriðils 4 og treysta á að Slóvenía taki stig af Króatíu, eða það sem langsóttara er, að Grænhöfðaeyjar taki stig af Egyptalandi. Líkt og áður þá gefur íþróttadeild Vísis og Stöðvar tvö leikmönnum og þjálfaranum einkunnir fyrir frammistöðu sína. Leikmenn og þjálfarar fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir. Einkunnir Íslands gegn Króatíu:- Byrjunarlið Íslands í leiknum - Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður - 3 (13 varin skot - 39:01 mín.) Eftir að hafa verið frábær á mótinu varði Viktor ekki skot í fyrri hálfleik. Fékk ekkert við ráðið, sama hvort það voru langskot eða dauðafæri. Kom inn á í hálfleik og var algjörlega framúrskarandi í seinni hálfleik. Varði þá þrettán af þeim 25 skotum sem hann fékk á sig, eða 52 prósent. En það dugði skammt þar sem ekkert annað í leik Íslands lagaðist í seinni hálfleik. Orri Freyr Þorkelsson, vinstri hornamaður - 3 (4 mörk - 60:00 mín.) Sýndi gríðarlegt öryggi framan af leik og skoraði úr fyrstu þremur skotunum sínum. Eftir það hallaði undan fæti hjá Orra sem skoraði aðeins eitt mark úr næstu fimm skotum. Slakasti leikur hans á mótinu. Elvar Örn Jónsson, vinstri skytta - 2 (1 mark - 36:47 mín.) Hefur verið algjörlega magnaður í vörninni á HM en náði sér engan veginn á strik í leiknum í kvöld. Réði ekkert við króatísku sóknarmennina sem léku við hvurn sinn fingur. Gerði ekkert í sókninni, ekki frekar en í síðustu leikjum. Janus Daði Smárason, leikstjórnandi - 2 (3 mörk - 24:14 mín.) Skoraði fyrsta mark leiksins en var glórulaus eftir það. Fór með þrjár sóknir í röð og Króatar gengu á lagið. Varnarlaus á hinum enda vallarins. Gerir enn alltof mörg mistök. Skoraði tvö mörk undir lokin og lagaði tölfræðina sína aðeins. Viggó Kristjánsson, hægri skytta - 3 (5/2 mörk - 45:29 mín.) Var markahæstur í íslenska liðinu en átti ekki sinn besta leik. Gerði of mörg mistök, var ragur að fara inn í færin sín eftir því sem leið á leikinn og virtist vera kominn af fótum fram. Enda þarf hann að spila nánast hverja einustu mínútu. Viggó endaði með fimm mörk, fjórar stoðsendingar og tvö fiskuð víti en hefur oftast spilað betur en í kvöld. Óðinn Þór Ríkharðsson, hægri hornamaður - 1 (0 mörk - 29:53 mín.) Klikkaði á eina skotinu sem hann tók. Hefur átt slakt mót. Ýmir Örn Gíslason, línumaður - 2 (2 mörk - 39:23 mín.) Hefur verið frábær í vörninni á mótinu en í kvöld var Ýmir í miklu basli. Fékk ekkert við ráðið í varnarleiknum. Skoraði tvö mörk en króatísku varnarmennirnir þurftu ekki að hafa miklar áhyggjur af honum í sókninni. - Menn sem komu inn af bekknum í leiknum - Björgvin Páll Gústavsson, markvörður - 1 (2 varin skot - 17:33 mín.) Kom inn á eftir um tíu mínútur. Varði tvö skot en var alltof lengi inn á. Virkaði illa áttaður og missti nokkur skot inn. Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi - 1 (0 mörk - 7:12 mín.) Hvernig getur leikmaður sem hefur verið valinn bestur í þýsku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu litið út eins og algjör meðaljón með íslenska landsliðinu? Komst ekkert áleiðis í endalausu hnoði og króatísku varnarmennirnir negldu Gísla hvað eftir annað. Verður að sýna meira í landsliðsbúningnum. Aron Pálmarsson, vinstri skytta - 3 (4 mörk - 35:02 mín.) Var sá eini af útispilurunum sem komst eitthvað áleiðis í fyrri hálfleik. Gerði samt fullt af mistökum í sókninni og var óvenju slakur í vörninni. Sýndi ekki sömu frammistöðu og í síðustu þremur leikjum en reyndi samt eins og hann gat. Tapaði boltanum fjórum sinnum. Elliði Snær Viðarsson, línumaður - 2 (1 mark - 35:07 mín.) Hjálpaði íslenska liðinu ekkert í leiknum. Slakur í vörn og átti ekkert í Króatana inni á línunni. Haukur Þrastarson, vinstri skytta - 3 (2 mörk - 5:58 mín.) Enn og aftur notaður afar sparlega. Virkaði hálf smeykur er hann kom inn á í fyrri hálfleik en skilaði samt tveimur mörkum og stoðsendingu á þeim sex mínútum sem hann spilaði í leiknum. Það hlýtur að vera hægt að fá meira út úr Hauki en hefur verið gert á þessu móti. Teitur Örn Einarsson, hægri skytta - (0 mörk - 2:55 mín.) Þjálfarinn virðist hafa minni en enga trú á Teiti sem kom bara inn á þegar Viggó fékk brottvísun. Til hvers í ósköpunum var verið að taka hann með á mótið? Sigvaldi Guðjónsson, hægra horn - 2 (3 mörk - 28:32 mín.) Spilaði seinni hálfleikinn. Skoraði þrjú mörk en klikkaði á þremur skotum. Hefur, líkt og Óðinn, ekki spilað vel á mótinu. Einar Þorsteinn Ólafsson, varnarmaður - 3 (0 mörk - 12:54 mín.) Spilaði vörnina síðasta stundarfjórðunginn og átti sinn þátt í að hún lagaðist. Króatar voru vissulega byrjaðir að spila lengri sóknir og tefja tímann en Einar komst ágætlega frá sínu. Hefði mátt koma fyrr inn á. Þorsteinn Leó Gunnarsson, vinstri skytta - (spilaði ekkert) Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari - 1 Var skákaður og mátaður af refinum Degi. Spennustig íslenska liðsins virkaði ekki rétt stillt og það virtist ekki eiga nein svör við 5-1 vörn Króatíu. Snorri var alltof lengi að taka leikhlé í fyrri hálfleik og kom ekki með neinar lausnir í hálfleik þótt staðan hafi vissulega verið orðin erfið. Fær lítið út úr Gísla og hélt Björgvini of lengi inn á í fyrri hálfleik. Íslenska liðið hefur spilað vel á HM en í kvöld magalenti það, og það með látum. Útskýring á einkunnum 6 - Heimsklassa frammistaða 5 - Frábær frammistaða 4 - Góð frammistaða 3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu 2 - Ekki nógu góð frammistaða 1 - Slakur leikur HM karla í handbolta 2025 Landslið karla í handbolta Tengdar fréttir „Verðum bara að vera bjartsýnir og hafa trú“ „Þetta er ótrúlega svekkjandi,“ sagði Elliði Snær Viðarsson eftir tapið gegn Króatíu á HM í handbolta í kvöld. Hann heldur þó í bjartsýnina og von um sæti í 8-liða úrslitum. 24. janúar 2025 21:38 „Ég held að þeim hafi bara liðið vel allan tímann“ „Erfiður dagur. Við vorum bara ekki nægilega góðir,“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir sex marka tap gegn Króatíu. Hann segir liðið ekki hafa náð sama takti varnarlega og í síðustu tveimur leikjum, tapið muni síðan líklega kosta sæti í átta liða úrslitum. 24. janúar 2025 21:24 „Fyrri hálfleikurinn var alveg frábær“ „Við fengum rosa góða byrjun á leiknum, vörnin var alveg hrikalega sterk og markvarslan góð. Fengum ekkert hraðaupphlaup út úr því en náðum að komast í sóknirnar og klára þær ágætlega,“ sagði landsliðsþjálfari Króatíu, Dagur Sigurðsson, eftir sigurinn gegn Íslandi. 24. janúar 2025 21:51 „Gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum ekki að gera“ „Við vorum með allt klárt og gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum ekki að gera,“ sagði Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, hundóánægður eftir skelfilega útreið gegn Króatíu á HM í Zagreb í kvöld. 24. janúar 2025 21:13 Logi Geirs: „Það er ótrúlegt að liðið sé komið í þessa stöðu“ Logi Geirsson var sleginn eins og fleiri Íslendingar eftir stóra tapið á móti Króatíu í kvöld. Hvernig er hægt að klúðra mótinu í einum hálfleik? 24. janúar 2025 21:49 Tölfræðin á móti Króatíu: Níu prósent markvarsla í fyrri hálfleik Íslenska karlalandsliðið í handbolta fékk slæman skell á móti Króatíu í öðrum leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í handbolta. Liðið mátti ekki tapa með fjórum mörkum eða meira en skellurinn var stærri. Sex marka tap kippti íslenska liðinu harkalega niður á jörðina og hálfa leið út úr mótinu. 24. janúar 2025 21:29 Umfjöllun: Króatía - Ísland 32-26 | Hjálp Slóvenar! Við klúðruðum þessu Eftir skelfilegt tap gegn Króatíu í Zagreb í kvöld veltur draumur Íslands um sæti í 8-liða úrslitum á HM á hjálp frá Slóveníu á sunnudaginn. Króatar voru átta mörkum yfir eftir ótrúlegan fyrri hálfleik, 20-12, og unnu að lokum 32:26. 24. janúar 2025 20:53 Mest lesið Gengur út ef hann fær sömu meðferð og Glazerarnir Fótbolti Merino aftur hetja Arsenal Enski boltinn Sjáðu hetjudáðir Stefáns Teits í enska boltanum í gær Enski boltinn Haaland sló enn eitt metið í gær Fótbolti Tvíburarnir áttu Arnars og Bjarka stund með unglingaliði Man. Utd Enski boltinn Sæmdu hvor aðra Gullmerki KKÍ Körfubolti Í beinni: Newcastle United - Liverpool | Úrslitaleikur á Wembley Enski boltinn „Hver einasti blettur ætti að vera hluti af leiknum“ Enski boltinn Dallas Mavericks gæti þurft að gefa NBA leiki Körfubolti Dagskráin í dag: Titill í boði fyrir Liverpool og Newcastle Sport Fleiri fréttir Færeyingar unnu í Hollandi og eru á toppnum í riðlinum ÍR-konur upp fyrir Selfoss eftir sigur á Selfossi Aldís Ásta spilaði upp liðsfélagana í enn einum sigrinum Aðeins einu sinni komist fyrr inn á EM í handbolta Myndir frá sigrinum sem tryggði EM-sætið „Betri ára yfir okkur“ „Á einhver ótrúlegan hátt tekst þeim að dæma ruðning“ Haukar fóru illa með botnliðið „Þetta var góður gluggi fyrir marga“ Leik lokið: Fram - Valur 27-26 | Fram hafði betur í toppslagnum Lærisveinar Alfreðs að stinga af Uppgjörið: Ísland - Grikkland 33-21 | EM-sætið tryggt með glæsibrag Dana Björg með níu mörk í stórsigri Snorri Steinn um Hauk: Mér finnst hann hafa valið rétt „Viljum klára það eins fljótt og hægt er“ Aron verður heldur ekki með í dag „Hefur verið draumur minn síðan ég var lítill“ „Að fá að gera þetta alla daga er draumur“ Síðustu miðarnir ruku út og uppselt í Laugardalshöllina á morgun Donni: Ekki spilað með helmingnum af þessum strákum Róbert aðstoðar Ágúst á Hlíðarenda „Engin draumastaða“ Alfreð fyrsti íslenski þjálfarinn til að tapa stigi Hart barist um að fylgja Íslandi á EM Gunnar tekur aftur við Haukum „Við endum í þessu þriðja sæti og þannig er bara lífið“ Gróttukonur gerðu aftur góða ferð á Selfoss Uppgjör: Fram-Haukar 26-23 | Hefndu fyrir tap í bikarúrslitaleiknum „Frábært að fá fleiri gaura inn í systemið“ „Finnst við hafa sýnt hversu góðir við erum“ Sjá meira
Strákarnir hans Dags Sigurðssonar mættu gríðarlega einbeittir til leiks og drógu strax tennurnar úr okkar mönnum. Ekki stóð steinn yfir steini í varnarleik Íslands í fyrri hálfleik og markverðirnir vörðu aðeins samtals tvö skot í honum. Sóknarleikurinn var líka afleitur gegn sterkri 5-1 vörn Króatíu. Þá varði Dominik Kuzmanovic frábærlega í króatíska markinu. Heimamenn voru átta mörkum yfir í hálfleik, 20-12, og ljóst að brekkan yrði brött fyrir okkar menn í seinni hálfleik. Þeir máttu aðeins tapa með þremur mörkum eða minna til að sigur gegn Argentínumönnum myndi örugglega duga til þess að komast í átta liða úrslit. Viktor Gísli Hallgrímsson kom aftur í markið í seinni hálfleik og varði þá frábærlega, alls þrettán skot, en allt annað var í sömu molum og í fyrri hálfleik. Íslendingar ógnuðu aldrei forskoti Króata sem unnu á endanum sex marka sigur, 32-26. Ísland þarf núna að vinna Argentínu í lokaumferð milliriðils 4 og treysta á að Slóvenía taki stig af Króatíu, eða það sem langsóttara er, að Grænhöfðaeyjar taki stig af Egyptalandi. Líkt og áður þá gefur íþróttadeild Vísis og Stöðvar tvö leikmönnum og þjálfaranum einkunnir fyrir frammistöðu sína. Leikmenn og þjálfarar fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir. Einkunnir Íslands gegn Króatíu:- Byrjunarlið Íslands í leiknum - Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður - 3 (13 varin skot - 39:01 mín.) Eftir að hafa verið frábær á mótinu varði Viktor ekki skot í fyrri hálfleik. Fékk ekkert við ráðið, sama hvort það voru langskot eða dauðafæri. Kom inn á í hálfleik og var algjörlega framúrskarandi í seinni hálfleik. Varði þá þrettán af þeim 25 skotum sem hann fékk á sig, eða 52 prósent. En það dugði skammt þar sem ekkert annað í leik Íslands lagaðist í seinni hálfleik. Orri Freyr Þorkelsson, vinstri hornamaður - 3 (4 mörk - 60:00 mín.) Sýndi gríðarlegt öryggi framan af leik og skoraði úr fyrstu þremur skotunum sínum. Eftir það hallaði undan fæti hjá Orra sem skoraði aðeins eitt mark úr næstu fimm skotum. Slakasti leikur hans á mótinu. Elvar Örn Jónsson, vinstri skytta - 2 (1 mark - 36:47 mín.) Hefur verið algjörlega magnaður í vörninni á HM en náði sér engan veginn á strik í leiknum í kvöld. Réði ekkert við króatísku sóknarmennina sem léku við hvurn sinn fingur. Gerði ekkert í sókninni, ekki frekar en í síðustu leikjum. Janus Daði Smárason, leikstjórnandi - 2 (3 mörk - 24:14 mín.) Skoraði fyrsta mark leiksins en var glórulaus eftir það. Fór með þrjár sóknir í röð og Króatar gengu á lagið. Varnarlaus á hinum enda vallarins. Gerir enn alltof mörg mistök. Skoraði tvö mörk undir lokin og lagaði tölfræðina sína aðeins. Viggó Kristjánsson, hægri skytta - 3 (5/2 mörk - 45:29 mín.) Var markahæstur í íslenska liðinu en átti ekki sinn besta leik. Gerði of mörg mistök, var ragur að fara inn í færin sín eftir því sem leið á leikinn og virtist vera kominn af fótum fram. Enda þarf hann að spila nánast hverja einustu mínútu. Viggó endaði með fimm mörk, fjórar stoðsendingar og tvö fiskuð víti en hefur oftast spilað betur en í kvöld. Óðinn Þór Ríkharðsson, hægri hornamaður - 1 (0 mörk - 29:53 mín.) Klikkaði á eina skotinu sem hann tók. Hefur átt slakt mót. Ýmir Örn Gíslason, línumaður - 2 (2 mörk - 39:23 mín.) Hefur verið frábær í vörninni á mótinu en í kvöld var Ýmir í miklu basli. Fékk ekkert við ráðið í varnarleiknum. Skoraði tvö mörk en króatísku varnarmennirnir þurftu ekki að hafa miklar áhyggjur af honum í sókninni. - Menn sem komu inn af bekknum í leiknum - Björgvin Páll Gústavsson, markvörður - 1 (2 varin skot - 17:33 mín.) Kom inn á eftir um tíu mínútur. Varði tvö skot en var alltof lengi inn á. Virkaði illa áttaður og missti nokkur skot inn. Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi - 1 (0 mörk - 7:12 mín.) Hvernig getur leikmaður sem hefur verið valinn bestur í þýsku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu litið út eins og algjör meðaljón með íslenska landsliðinu? Komst ekkert áleiðis í endalausu hnoði og króatísku varnarmennirnir negldu Gísla hvað eftir annað. Verður að sýna meira í landsliðsbúningnum. Aron Pálmarsson, vinstri skytta - 3 (4 mörk - 35:02 mín.) Var sá eini af útispilurunum sem komst eitthvað áleiðis í fyrri hálfleik. Gerði samt fullt af mistökum í sókninni og var óvenju slakur í vörninni. Sýndi ekki sömu frammistöðu og í síðustu þremur leikjum en reyndi samt eins og hann gat. Tapaði boltanum fjórum sinnum. Elliði Snær Viðarsson, línumaður - 2 (1 mark - 35:07 mín.) Hjálpaði íslenska liðinu ekkert í leiknum. Slakur í vörn og átti ekkert í Króatana inni á línunni. Haukur Þrastarson, vinstri skytta - 3 (2 mörk - 5:58 mín.) Enn og aftur notaður afar sparlega. Virkaði hálf smeykur er hann kom inn á í fyrri hálfleik en skilaði samt tveimur mörkum og stoðsendingu á þeim sex mínútum sem hann spilaði í leiknum. Það hlýtur að vera hægt að fá meira út úr Hauki en hefur verið gert á þessu móti. Teitur Örn Einarsson, hægri skytta - (0 mörk - 2:55 mín.) Þjálfarinn virðist hafa minni en enga trú á Teiti sem kom bara inn á þegar Viggó fékk brottvísun. Til hvers í ósköpunum var verið að taka hann með á mótið? Sigvaldi Guðjónsson, hægra horn - 2 (3 mörk - 28:32 mín.) Spilaði seinni hálfleikinn. Skoraði þrjú mörk en klikkaði á þremur skotum. Hefur, líkt og Óðinn, ekki spilað vel á mótinu. Einar Þorsteinn Ólafsson, varnarmaður - 3 (0 mörk - 12:54 mín.) Spilaði vörnina síðasta stundarfjórðunginn og átti sinn þátt í að hún lagaðist. Króatar voru vissulega byrjaðir að spila lengri sóknir og tefja tímann en Einar komst ágætlega frá sínu. Hefði mátt koma fyrr inn á. Þorsteinn Leó Gunnarsson, vinstri skytta - (spilaði ekkert) Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari - 1 Var skákaður og mátaður af refinum Degi. Spennustig íslenska liðsins virkaði ekki rétt stillt og það virtist ekki eiga nein svör við 5-1 vörn Króatíu. Snorri var alltof lengi að taka leikhlé í fyrri hálfleik og kom ekki með neinar lausnir í hálfleik þótt staðan hafi vissulega verið orðin erfið. Fær lítið út úr Gísla og hélt Björgvini of lengi inn á í fyrri hálfleik. Íslenska liðið hefur spilað vel á HM en í kvöld magalenti það, og það með látum. Útskýring á einkunnum 6 - Heimsklassa frammistaða 5 - Frábær frammistaða 4 - Góð frammistaða 3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu 2 - Ekki nógu góð frammistaða 1 - Slakur leikur
6 - Heimsklassa frammistaða 5 - Frábær frammistaða 4 - Góð frammistaða 3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu 2 - Ekki nógu góð frammistaða 1 - Slakur leikur
HM karla í handbolta 2025 Landslið karla í handbolta Tengdar fréttir „Verðum bara að vera bjartsýnir og hafa trú“ „Þetta er ótrúlega svekkjandi,“ sagði Elliði Snær Viðarsson eftir tapið gegn Króatíu á HM í handbolta í kvöld. Hann heldur þó í bjartsýnina og von um sæti í 8-liða úrslitum. 24. janúar 2025 21:38 „Ég held að þeim hafi bara liðið vel allan tímann“ „Erfiður dagur. Við vorum bara ekki nægilega góðir,“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir sex marka tap gegn Króatíu. Hann segir liðið ekki hafa náð sama takti varnarlega og í síðustu tveimur leikjum, tapið muni síðan líklega kosta sæti í átta liða úrslitum. 24. janúar 2025 21:24 „Fyrri hálfleikurinn var alveg frábær“ „Við fengum rosa góða byrjun á leiknum, vörnin var alveg hrikalega sterk og markvarslan góð. Fengum ekkert hraðaupphlaup út úr því en náðum að komast í sóknirnar og klára þær ágætlega,“ sagði landsliðsþjálfari Króatíu, Dagur Sigurðsson, eftir sigurinn gegn Íslandi. 24. janúar 2025 21:51 „Gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum ekki að gera“ „Við vorum með allt klárt og gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum ekki að gera,“ sagði Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, hundóánægður eftir skelfilega útreið gegn Króatíu á HM í Zagreb í kvöld. 24. janúar 2025 21:13 Logi Geirs: „Það er ótrúlegt að liðið sé komið í þessa stöðu“ Logi Geirsson var sleginn eins og fleiri Íslendingar eftir stóra tapið á móti Króatíu í kvöld. Hvernig er hægt að klúðra mótinu í einum hálfleik? 24. janúar 2025 21:49 Tölfræðin á móti Króatíu: Níu prósent markvarsla í fyrri hálfleik Íslenska karlalandsliðið í handbolta fékk slæman skell á móti Króatíu í öðrum leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í handbolta. Liðið mátti ekki tapa með fjórum mörkum eða meira en skellurinn var stærri. Sex marka tap kippti íslenska liðinu harkalega niður á jörðina og hálfa leið út úr mótinu. 24. janúar 2025 21:29 Umfjöllun: Króatía - Ísland 32-26 | Hjálp Slóvenar! Við klúðruðum þessu Eftir skelfilegt tap gegn Króatíu í Zagreb í kvöld veltur draumur Íslands um sæti í 8-liða úrslitum á HM á hjálp frá Slóveníu á sunnudaginn. Króatar voru átta mörkum yfir eftir ótrúlegan fyrri hálfleik, 20-12, og unnu að lokum 32:26. 24. janúar 2025 20:53 Mest lesið Gengur út ef hann fær sömu meðferð og Glazerarnir Fótbolti Merino aftur hetja Arsenal Enski boltinn Sjáðu hetjudáðir Stefáns Teits í enska boltanum í gær Enski boltinn Haaland sló enn eitt metið í gær Fótbolti Tvíburarnir áttu Arnars og Bjarka stund með unglingaliði Man. Utd Enski boltinn Sæmdu hvor aðra Gullmerki KKÍ Körfubolti Í beinni: Newcastle United - Liverpool | Úrslitaleikur á Wembley Enski boltinn „Hver einasti blettur ætti að vera hluti af leiknum“ Enski boltinn Dallas Mavericks gæti þurft að gefa NBA leiki Körfubolti Dagskráin í dag: Titill í boði fyrir Liverpool og Newcastle Sport Fleiri fréttir Færeyingar unnu í Hollandi og eru á toppnum í riðlinum ÍR-konur upp fyrir Selfoss eftir sigur á Selfossi Aldís Ásta spilaði upp liðsfélagana í enn einum sigrinum Aðeins einu sinni komist fyrr inn á EM í handbolta Myndir frá sigrinum sem tryggði EM-sætið „Betri ára yfir okkur“ „Á einhver ótrúlegan hátt tekst þeim að dæma ruðning“ Haukar fóru illa með botnliðið „Þetta var góður gluggi fyrir marga“ Leik lokið: Fram - Valur 27-26 | Fram hafði betur í toppslagnum Lærisveinar Alfreðs að stinga af Uppgjörið: Ísland - Grikkland 33-21 | EM-sætið tryggt með glæsibrag Dana Björg með níu mörk í stórsigri Snorri Steinn um Hauk: Mér finnst hann hafa valið rétt „Viljum klára það eins fljótt og hægt er“ Aron verður heldur ekki með í dag „Hefur verið draumur minn síðan ég var lítill“ „Að fá að gera þetta alla daga er draumur“ Síðustu miðarnir ruku út og uppselt í Laugardalshöllina á morgun Donni: Ekki spilað með helmingnum af þessum strákum Róbert aðstoðar Ágúst á Hlíðarenda „Engin draumastaða“ Alfreð fyrsti íslenski þjálfarinn til að tapa stigi Hart barist um að fylgja Íslandi á EM Gunnar tekur aftur við Haukum „Við endum í þessu þriðja sæti og þannig er bara lífið“ Gróttukonur gerðu aftur góða ferð á Selfoss Uppgjör: Fram-Haukar 26-23 | Hefndu fyrir tap í bikarúrslitaleiknum „Frábært að fá fleiri gaura inn í systemið“ „Finnst við hafa sýnt hversu góðir við erum“ Sjá meira
„Verðum bara að vera bjartsýnir og hafa trú“ „Þetta er ótrúlega svekkjandi,“ sagði Elliði Snær Viðarsson eftir tapið gegn Króatíu á HM í handbolta í kvöld. Hann heldur þó í bjartsýnina og von um sæti í 8-liða úrslitum. 24. janúar 2025 21:38
„Ég held að þeim hafi bara liðið vel allan tímann“ „Erfiður dagur. Við vorum bara ekki nægilega góðir,“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir sex marka tap gegn Króatíu. Hann segir liðið ekki hafa náð sama takti varnarlega og í síðustu tveimur leikjum, tapið muni síðan líklega kosta sæti í átta liða úrslitum. 24. janúar 2025 21:24
„Fyrri hálfleikurinn var alveg frábær“ „Við fengum rosa góða byrjun á leiknum, vörnin var alveg hrikalega sterk og markvarslan góð. Fengum ekkert hraðaupphlaup út úr því en náðum að komast í sóknirnar og klára þær ágætlega,“ sagði landsliðsþjálfari Króatíu, Dagur Sigurðsson, eftir sigurinn gegn Íslandi. 24. janúar 2025 21:51
„Gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum ekki að gera“ „Við vorum með allt klárt og gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum ekki að gera,“ sagði Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, hundóánægður eftir skelfilega útreið gegn Króatíu á HM í Zagreb í kvöld. 24. janúar 2025 21:13
Logi Geirs: „Það er ótrúlegt að liðið sé komið í þessa stöðu“ Logi Geirsson var sleginn eins og fleiri Íslendingar eftir stóra tapið á móti Króatíu í kvöld. Hvernig er hægt að klúðra mótinu í einum hálfleik? 24. janúar 2025 21:49
Tölfræðin á móti Króatíu: Níu prósent markvarsla í fyrri hálfleik Íslenska karlalandsliðið í handbolta fékk slæman skell á móti Króatíu í öðrum leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í handbolta. Liðið mátti ekki tapa með fjórum mörkum eða meira en skellurinn var stærri. Sex marka tap kippti íslenska liðinu harkalega niður á jörðina og hálfa leið út úr mótinu. 24. janúar 2025 21:29
Umfjöllun: Króatía - Ísland 32-26 | Hjálp Slóvenar! Við klúðruðum þessu Eftir skelfilegt tap gegn Króatíu í Zagreb í kvöld veltur draumur Íslands um sæti í 8-liða úrslitum á HM á hjálp frá Slóveníu á sunnudaginn. Króatar voru átta mörkum yfir eftir ótrúlegan fyrri hálfleik, 20-12, og unnu að lokum 32:26. 24. janúar 2025 20:53