Halda í veika von og gætu mætt Íslandi Sindri Sverrisson skrifar 23. janúar 2025 16:05 Filip Kuzmanovski er algjör lykilmaður í liði Norður-Makedóníu. Getty/Vjeran Zganec Norður-Makedóníumenn eru enn með í baráttunni um sæti í 8-liða úrslitum á HM, eftir öruggan sigur gegn Katar í dag, 39-34, í næstsíðustu umferð milliriðils II.
Efstu tvö liðin í milliriðli II munu mæta liðum úr milliriðli IV, sem Ísland leikur í, þegar kemur í 8-liða úrslitin. Von Norður-Makedóníu um að ná þangað er veik en hún lifir eftir sigurinn í dag. Síðar í dag mætast Holland og Frakkland, og svo Austurríki og Ungverjaland. Staðan fyrir þessa leiki er: Frakkland 6, Holland 4, Norður-Makedónía 4, Ungverjaland 3, Austurríki 3, Katar 0. Norður-Makedónía þarf því að vinna Evrópumeistara Frakka í lokaumferð milliriðilsins á laugardaginn, og treysta á fleiri hagstæð úrslit. Sigurinn í dag gefur þó í það minnsta von um besta árangur liðsins á HM síðan það endaði í 9. sæti árið 2015. Það var aldrei spurning hvernig færi í leiknum við Katar í dag. Norður-Makedónía var 21-17 yfir í hálfleik og hélt Katörum frá sér í seinni hálfleiknum. Filip Kuzmanovski og Zharko Peshevski voru markahæstir hjá Norður-Makedóníu í dag með sex mörk hvor, en Marko Mitev skoraði fimm og var valinn maður leiksins. Hjá Katar var Frankis Marzo markahæstur með tólf mörk. Tékkland fékk sín fyrstu stig í milliriðli I með sigri á Túnis, 26-32. Hvorugt liðið á möguleika á að komast í átta liða úrslit.
HM karla í handbolta 2025 Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Sara Björk komin heim Sport Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Fleiri fréttir Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Sjá meira