Sögulegur árangur Portúgals á HM Sindri Sverrisson skrifar 24. janúar 2025 16:25 Rui Silva sækir að vörn Spánverja í dag. EPA/Stian Lysberg Solum Portúgalar eru komnir áfram í 8-liða úrslit HM karla í handbolta í fyrsta sinn, eftir að hafa skellt grönnum sínum frá Spáni, 35-29, í dag.
Portúgal var 16-15 undir í hálfleik en náði að snúa stöðunni sér í vil í seinni hálfleiknum. Francisco Costa fór fyrir liðinu sem náði 6-0 kafla og hann endaði markahæstur með átta mörk. Þetta er í fyrsta sinn sem að Portúgal vinnur Spán og jafnframt í fyrsta sinn sem Portúgalar komast í 8-liða úrslit HM. Áður höfðu Danmörk, Frakkland og Þýskaland tryggt sig áfram í 8-liða úrslitin. Portúgal er með sjö stig á toppi milliriðils þrjú en Spánn aðeins með þrjú stig eftir fjóra leiki. Spánn er gott sem fallinn úr keppni en Svíþjóð og Brasilía, sem eru með fjögur stig hvort, mætast í dag. Í milliriðli fjögur, sem Ísland spilar í, mættust tvö neðstu liðin og þar vann Argentína 30-26 sigur gegn Grænhöfðaeyjum. Hafsteinn Ramos Rocha var ekki á meðal markaskorara Grænhöfðaeyja sem núna eru eina stigalausa liðið í milliriðlinum. Lærisveinar Arons Kristjánssonar í Barein urðu svo að sætta sig við 31-27 tap gegn Japan í Forsetabikarnum. Þeir mæta Bandaríkjunum á sunnudaginn í leik sem ræður því um hvaða sæti Barein spilar á mótinu og gætu enn unnið Forsetabikarinn með því að enda í 25. sæti.
HM karla í handbolta 2025 Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Sara Björk komin heim Sport Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Fleiri fréttir Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Sjá meira