Handbolti

„Fyrri hálf­leikurinn var al­veg frá­bær“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Dagur Sigurðsson var annar af tveimur Íslendingum sem gladdist yfir sigri Króata í kvöld. Hann vonar samt að samlandar sínir komist áfram í átta liða úrslit.
Dagur Sigurðsson var annar af tveimur Íslendingum sem gladdist yfir sigri Króata í kvöld. Hann vonar samt að samlandar sínir komist áfram í átta liða úrslit. vísir / vilhelm

„Við fengum rosa góða byrjun á leiknum, vörnin var alveg hrikalega sterk og markvarslan góð. Fengum ekkert hraðaupphlaup út úr því en náðum að komast í sóknirnar og klára þær ágætlega,“ sagði landsliðsþjálfari Króatíu, Dagur Sigurðsson, eftir sigurinn gegn Íslandi.

„Fyrri hálfleikurinn var alveg frábær og svo náum við einhvern veginn að halda út. Hjálpaði náttúrulega svakalega að markmaðurinn [Zdravko] Kuzmanović varði á mikilvægum augnablikum,“ hélt hann svo áfram og sagði stemningu í höllinni í kvöld hafa verið snælduvitlausa.

Um þrettán þúsund Króatar studdu liðið til sigurs.vísir / vilhelm

Íslendingar leyfðu sér að dreyma um sigur eftir að hafa unnið Egyptaland örugglega í fyrradag, lið sem hafði unnið Króatíu með fjórum mörkum fyrr á mótinu. Í kvöld endurheimti Króatía hins vegar mikilvægan varnarmann úr meiðslum.

„Við höfum alveg spilað ágætlega, á mótinu og í undirbúningnum, en svo komu smá áföll. Bæði leikstjórnendurnir og David Mandic [voru frá vegna meiðsla]. Við sáum í dag hvað hann er mikilvægur. Þetta var vörnin sem að leit best út í undirbúningnum en svo misstum við hann út. Mjög mikilvægt að fá hann til baka.“

Viðtalið við Dag má sjá í heild hér að neðan.

Úrslitin voru súrsæt fyrir Dag, sem er auðvitað Íslendingar og heldur iðulega með strákunum okkar en ekki í kvöld.

„Jú [það var skrítið að vinna Ísland]… og ég vona auðvitað að þeir komist áfram, en við verðum að sjá hvað gerist.“

Dagur sagði 5-1 vörnina hafa verið lykilinn að sigri Króata í kvöld. Varnaraðgerðir hafi verið vel framkvæmdar og af mikilli ákefð, markvarslan hafi svo einnig hjálpað heilmikið. Sömuleiðis hjálpaði það Króötum hversu óskipulögð íslenska vörnin var og hvað markmenn Íslands vörðu lítið.

„Það má ekki gleyma því þegar svona læti fara í gang, þá er auðvelt að blokkerast. Þegar þú ert kominn þrjú, fjögur, fimm mörk undir, þá fara menn að hugsa of mikið,“ sagði hann svo að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×