McDonalds heimsókn strákanna virðist ekki hafa haft góð áhrif á hópinn.
Slæmt ef það stefnir í að þessi McDonalds heimsókn sé slæmi kaflinn #hmruv
— KonniWaage (@konninn) January 24, 2025
Þeir hefðu betur sleppt því að fagna sigrinum í síðasta leik með McDonalds #hmruv
— Ernir Gunnlaugsson (@ErnirFreyr) January 24, 2025
Þessi leikur er ömurleg auglýsing fyrir McDonald’s. #hmruv
— Ragnar Sigurðsson (@swagnar157) January 24, 2025
Djöööfull áttu menn þennan McDonalds ekki skilið, étið þennan bragðlausa kjúlla og grjóthaldið kjafti! #hmruv
— Sindri Már Stefánsson (@sindrimarstef) January 24, 2025
Markmenn Íslands vörðu lítið sem ekkert og Viktori Gísla var snemma skipt út fyrir Björgvin Pál.
Sniðugt að taka einn besta markvörð mótsins útaf eftir 7 skot... 🙃#hmruv
— Twyzted (@Twyzted_) January 24, 2025
Björgvin í markinu í þessum fyrrihalfleik 👍 #snilld #bannaðaðverja #hmruv pic.twitter.com/g4FEXKKvRS
— Tómas Örn Arnarson (@TamArnarson) January 24, 2025
10% markvarsla og vörnin lekur öllu. Sóknin á pari við síðustu leiki. Þetta endar með niðurlægingu ef þetta heldur svona áfram #HMRUV
— Heiðar Austmann (@haustmann) January 24, 2025
Hinum megin var markmaður Króata í miklu stuði.
Ef ég sé markvörð Króatíu aldrei aftur verður það samt of snemmt #hmruv
— Sverrir Fridriksson 🇵🇸 (@Sigurdrifa) January 24, 2025
Þetta Króatíska gerpi i markinu að opna munninn upp á gáttt þegar hann öskrar með þennan ógeðslega góm, ojj bara.
— Hrafnkell Freyr Àgústsson (@hrafnkellfreyr) January 24, 2025
Þessi markmaður á eftir að ásækja mig í draumum mínum #hmruv pic.twitter.com/2Z6Zob4Ymm
— Gaukur Ulfarsson (@gaukur_u) January 24, 2025
Slæmi kaflinn alræmdi var ekki úr sögunni eins og margir leyfðu sér að vona.
Ákváðum að sleppa slæma kaflanum í fyrstu 4 leikjunum og taka bara einn slæman leik í staðinn #handbolti#hmruv
— Óskar G Óskarsson (@Oskarsson07) January 24, 2025
Munurinn á Íslensku og Króatísku sókninni er að Króatarnir hlaupa og Íslendingarnir labba. #handbolti #hmruv
— Viktor Hardarson (@ViktorHardarson) January 24, 2025
Ástin í garð Dags Sigurðssonar, þjálfara Króata, var engin.
Hvernig eru lögin um landráð? #hmruv pic.twitter.com/W93z1ryf4M
— Alexander (@alexandergisli) January 24, 2025
Ég við Dag Sigurðsson eftir þennan leik:#hmruv pic.twitter.com/WZWh4e8w8J
— María Björk (@baragrin) January 24, 2025
Gummi formaður HSÍ ætti að skammast sín. Að boða Dag Sig á fund á te og kaffi í Smáralindinni.
— Séffinn / Stručnjak / The Specialist / Experten (@arnardadi) January 24, 2025
Virðingu takk. pic.twitter.com/QkKMSvM0ue
— Hrafnkell Freyr Àgústsson (@hrafnkellfreyr) January 24, 2025
Sumir vildu meina að betur hefði gengið ef liðið hefði ekki klæðst bláum treyjum í kvöld.
Við erum í bláu...don't like it...mun samt mögulega éta orð mín,vonandi #hmruv
— Lobba (@Lobbsterinn) January 24, 2025
#hmruv af hverju er þessum bláu búningum ekki hent, það gengur aldrei neitt í bláu. #bringbacktheredkit
— Ernir Gunnlaugsson (@ErnirFreyr) January 24, 2025
Höllin var í eigu heimamanna.
Croatia are absolutely on fire! So much energy and passion. Zagreb Arena is burning.
— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) January 24, 2025
If Iceland comes back from this? Respect!#handball
Þetta átti bara að vera gaman en íslenska landsliðið tókst að eyðileggja það pic.twitter.com/Yxr2zCoMgB
— Séffinn / Stručnjak / The Specialist / Experten (@arnardadi) January 24, 2025
Held að lykilinn að þessu þroti sé ömurleg músik í höllinni, sem drepur niður alla leikgleði...það þarf að tækla þennan DJ strax #HMRUV
— Gudni Halldórsson (@GudniKlipp) January 24, 2025
Ísland naut stuðnings víðs vegar að.
Ég er fyrst að ná að horfa á okkar menn á þessu móti héðan frá Afríku og ég er lítil í mér 🥺 Koma svo! 🇮🇸
— Kristjana Arnarsdóttir (@kristjanaarnars) January 24, 2025
Hugur minn er hjá þeim sem fóru út á þennan leik af því að við vorum að fara að vinna þetta mót 🙏 #hmruv
— Valur Gunnarsson (@valurgunn) January 24, 2025
Þeir sem vonuðust eftir betri spilamennsku í seinni hálfleik fengu óskir sínar ekki uppfylltar.
Við keyrum upp Íslensku geðveikina i seinni, ég hef 0 áhyggjur.
— Hrafnkell Freyr Àgústsson (@hrafnkellfreyr) January 24, 2025
Var eiginlega ekkert eins öruggt fyrst við vorum í einhverjum séns að það yrði valtað yfir okkur #HmRuv
— Óskar G Óskarsson (@Oskarsson07) January 24, 2025
Að stilla Gísla Þorgeiri upp gegn 5-1 mistök
— Guðmundur Rúnar (@Gummirun) January 24, 2025
Að velja ekki Donna sem varaskyttu mistök
Að halda Bjögga inná í 20 mín í fyrri hàlfleik mistök
Að hafa ekkert plan B varnarlega mistök
Að nota ekki Þorstein Leó þegar ekkert gengur upp sóknarlega mistök#hmruv #Handkastið
Þorsteinn Leó Gunnarsson kom ekkert við sögu, meðan hávaxnir leikmenn Króatíu skutu ítrekað yfir íslensku vörnina.
Ég veit lítið sem ekkert um handbolta en við höfum einn risa með kjarnorkusprengju sem hendi og hann fékk 0 mín ?!?!? @arnardadi #hmruv pic.twitter.com/kRzch1lfKi
— Tómas Örn Arnarson (@TamArnarson) January 24, 2025
Það er þó enn von fyrir Ísland, ef Slóvenía vinnur eða gerir jafntefli gegn Króatíu á sunnudaginn. Eða Egyptaland tapar eða gerir jafntefli gegn Grænhöfðaeyjum, sem þykir enn ólíklegra.
Slóvenía tekur Króatíu á sun.
— saevar petursson (@saevarp) January 24, 2025
Íslenskur sigur og svo þurfa Egyptar eða Króatar að tapa stigi. Einfalt en ekkert endilega sennilegt.
— Einar Örn Jónsson (@RanieNro) January 24, 2025