Erlent

Þjóðaröryggisráðgjafi skildi gögnin sín í­trekað eftir á glám­bekk

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Landerholm og Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar eru vinir til margra ára og var tilnefning Landerholm í embættið því umdeild. 
Landerholm og Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar eru vinir til margra ára og var tilnefning Landerholm í embættið því umdeild.  EPA

Henrik Landerholm, þjóðaröryggisráðgjafi Svíþjóðar, hefur sagt starfi sínu lausu eftir að lögregla opnaði rannsókn á hugsanlegum brotum hans í starfi. Landerholm er sagður hafa skilið háleynileg gögn eftir á hóteli og ítrekað gleymt gögnum á glámbekk í starfi sínu.

Landerholm var tilnefndur í embættið fyrir tveimur árum en tilnefningin þótti umdeild vegna margra ára vináttu hans við Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar. 

Sænskir miðlar hafa undanfarnar vikur fjallað um hrakfarir Landerholm í starfi þjóðaröryggisráðgjafa. Honum er að auki gefið að sök að hafa skilið stílabók eftir í húsakynnum útvarpsstöðvar eftir að hann veitti viðtal. Þá er hann sagður hafa skilið farsímann sinn eftir í ungverska sendiráðinu í Svíþjóð í sólarhring. 

Atvikunum er lýst sem sérlega vandræðalegum fyrir Landerholm, sé litið á starfsvettvang hans. 

Ræstingarfólk fann gögnin

Í umfjöllun Guardian um málið segir að Landerholm hafi skilið trúnaðargögn eftir í öryggisskáp á hóteli þar sem ráðstefna fór fram í mars 2023. Samkvæmt heimildum sænska miðilsins Dagens Nyheter hnaut ræstingarfólk hótelsins um gögnin eftir að Landerholm hafði yfirgefið svæðið og sá samstarfsmaður hans um að sækja þau á hótelið. 

Sami miðill greindi frá því að í desember 2022 hafi Landerholm gleymt farsíma sínum í ungverska sendiráðinu og síminn verið þar heila nótt. Á þeim tíma stóð Svíþjóð í aðildarviðræðum að Atlantshafsbandalaginu en yfirvöld í Ungverjalandi voru treg til að heimila inngöngu Svía í bandalagið. 

Síminn sendur með leigubíl á kaffihús

Þá er Landerholm sagður hafa gleymt stílabók í húsakynnum sænska ríkisútvarpsins eftir að hann veitti stöðinni viðtal. Í það skipti kom enginn að sækja símann heldur var honum komið fyrir í plastpoka og pokinn sendur á kaffihús í Stokkhólmi með leigubíl, samkvæmt umfjöllun SR.

Landerholm sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann sagðist meðvitaður um að lögreglurannsókn hefði verið opnuð vegna atviksins á hótelinu. 

„Ég hef greint forsætisráðherra frá þessu og við erum sammála um að í ljósi aðstæðna get ég ekki lengur sinnt skyldum mínum og því segi ég af mér sem þjóðaröryggisráðgjafi,“ segir í yfirlýsingu Landerholm. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×