Sport

89 ára gamall öku­maður straujaði niður þýska lands­liðs­hjól­reiða­menn

Smári Jökull Jónsson skrifar
Bruno Kessler er einn hjólreiðamannanna sem keyrt var á.
Bruno Kessler er einn hjólreiðamannanna sem keyrt var á. Vísir/Getty

Sex landsliðsmenn Þýskalands í hjólreiðum voru fluttir á sjúkrahús á spænsku eyjunni Mallorca í dag eftir að hafa verið keyrðir niður þegar þeir voru við æfingar.

Sænska Aftonbladet greinir frá málinu og vísar í frétt á heimasíðu þýska hljólreiðasambandsins. Landsliðsmennirnir sex voru við æfingar í spænsku sólareyjunni og höfðu aðeins náð að hjóla 2,7 kílómetra þegar ekið var á þá.

Undir stýri var 89 ára gamall maður sem sá ekki hjólreiðamennina og keyrði beint á þá.

Landsliðsþjálfarinn Lucas Schädlich fylgdi hópnum eftir á bíl og varð vitni að atvikinu. Tveir landsliðsmannanna eru alvarlega slasaðir en ekki í lífshættu. Aðrir sluppu með beinbrot en verða frá keppni í töluverðan tíma.

Á meðal landsliðsmannanna sem lentu í slysinu eru Benjamin Boos og Bruno Kessler sem unnu bronsverðlaun á heimsmeistaramótinu í haust og Tobias Buck-Gramcko sem unnið hefur fjölda titla á heimsmeistaramóti unglinga. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×