Skoðun

Sterkara sam­fé­lag: Fram­farir í velferðarþjónustu Hvera­gerðis

Sandra Sigurðardóttir skrifar

Samvinna og framfarir í velferðarþjónustu Hveragerðis

Á undanförnu ári hefur verið unnið ötullega að framþróun í velferðarþjónustu Hveragerðisbæjar. Starfið einkennist af metnaði, samstöðu og þverfaglegri nálgun þar sem fjölbreytt teymi fagfólks vinnur saman að því að bæta þjónustu við íbúa bæjarins á öllum aldri.

Betri þjónusta fyrir eldri borgara

Sérstakt markmið hefur verið að efla þjónustu við eldri borgara. Með mögulegri tilkomu verkefnisins Gott að eldast á nýju ári er stefnt að samþættingu heimahjúkrunar og stuðningsþjónustu undir einni heildstæðri þjónustueiningu við hjúkrunarheimilið Ás. Þessi nálgun lofar góðu og mun skila betri þjónustu og auknu öryggi fyrir eldri borgara.

Á sama tíma hafa akstursreglur fyrir eldri borgara verið uppfærðar og stefnumótun í málefnum þeirra hefur verið styrkt með öflugra öldungaráði. Verkefnið Bjartur lífstíll vinnur að því að kortleggja heilsueflandi úrræði og tómstundastarf fyrir fólk 60 ára og eldri, sem stuðlar að betri lífsgæðum og virkni.

Stuðningsþjónusta fyrir alla aldurshópa

Stuðningsþjónustan í Hveragerði er mikilvægur þáttur í velferðarkerfinu og hefur það að markmiði að styðja fólk með fjölbreyttar þarfir. Hvort sem um er að ræða veikindi, fötlun, fjölskylduaðstæður eða aldur, þá er þjónustan ætluð þeim sem vilja búa heima eins lengi og mögulegt er. Með verkefninu Gott að eldast verður þessi þjónusta endurskipulögð og bætt enn frekar.

Félagsráðgjöf og mannúð í fyrirrúmi

Félagsráðgjöf í Hveragerði hefur tekið stakkaskiptum með uppfærðum reglum og skilvirkari vinnubrögðum. Félagsráðgjafar veita aðstoð og stuðning við fjölbreytt úrlausnarefni eins og atvinnuleysi, húsnæðisvanda, fjárhagsörðugleika og fjölskyldumál. Rafrænar umsóknir um fjárhagsaðstoð eru einnig stórt skref í átt að skilvirkari þjónustu.

Barnavernd – velferð barna í forgrunni

Barnaverndarþjónustan hefur sýnt styrk sinn í krefjandi aðstæðum. Með auknum mannafla og innleiðingu nýs rafræns þjónustukerfis hefur yfirsýn og meðferð mála batnað til muna. Farsældarlögin hafa einnig lagt grunn að betri samhæfingu þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.

Bætt þjónusta við fatlað fólk

Í málefnum fatlaðs fólks hefur sömuleiðis orðið veruleg framþróun. Reglur um akstur hafa verið uppfærðar, notendaráð stofnað og áhersla lögð á markvissa skráningu og eftirfylgni með málum. Innleiðing gagnvirkra kerfa eins og CareOn mun veita betri yfirsýn og tryggja betri þjónustu. Umsóknir um þjónustu eru nú aðgengilegar á íbúagátt, sem eykur skilvirkni og gagnsæi.

Stefnumál Okkar Hveragerðis verða að veruleika

Framfarirnar sem hafa átt sér stað í velferðarþjónustu Hveragerðis eru ekki tilviljun. Þær eru afrakstur skýrrar stefnumótunar og forgangsröðunar í málefnum sem skipta mestu máli. Samningur meirihluta bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar endurspeglar vel áherslur Okkar að efla þennan mikilvæga málaflokk og tryggja að þjónustan væri í takt við þarfir íbúa bæjarins og að bærinn væri að veita lögbundna þjónustu, þar sem velferð, virðing og mannúð væru í fyrirrúmi. Nú er það loksins orðið að veruleika.

Hveragerði í blóma

Með skýrri sýn og öflugri forystu hefur Okkar Hveragerði sýnt að það er hægt að breyta orðum í athafnir og stefnumálum í raunverulegar lausnir sem bæta lífsgæði allra íbúa.

Með áframhaldandi framþróun er björt framtíð fram undan fyrir alla íbúa bæjarins.

Saman byggjum við sterkara samfélag!

Höfundur er bæjarfulltrúi, formaður Velferðar- og fræðslunefndar Hveragerðisbæjar og oddviti Okkar Hveragerðis




Skoðun

Sjá meira


×