Verkföllum kennara aflýst samþykki deiluaðilar tillögu ríkissáttasemjara á laugardag Lovísa Arnardóttir og Heimir Már Pétursson skrifa 30. janúar 2025 17:20 Ásráður Haraldsson og Heimir Már Pétursson í Pallborðinu í dag. Vísir/Vilhelm Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari lagði í dag fram innanhústillögu í kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga. Tillagan er ígildi kjarasamnings sem tryggir innágreiðslu á virðismat á störfum kennara auk sömu launahækkana og samið hefur verið um í almennum kjarasamningum. Samþykki deiluaðilar tillöguna á laugardag verður ekkert af boðuðum verkföllum í leik- og grunnskólum á mánudag. Ástráður fór yfir tillöguna í Pallborðinu með Heimi Má Péturssyni fréttamanni síðdegis í dag.
Ríkissáttasemjari fór yfir innanhústillöguna í Pallborðinu með Heimi Má Péturssyni fréttamanni síðdegis í dag. Í lögum væri gert ráð fyrir að sáttasemjari megi leggja fram miðlunartillögu sem gangi svo beint til atkvæða hjá deiluaðilum. Samninganefndir taki þannig ekki afstöðu til slíkrar tillögu heldur félagsfólk. „Þessi tillaga er ekki þannig tillaga,“ segir Ástráður. Ástæðan fyrir því að hann leggi fram innanhústillögu sem í raun væri tillaga að kjarasamningi væri að það væru efnisleg atriði í tillögunni sem ættu ekki heima í miðlunartillögu. Nú þurfi samninganefndir deiluaðila að meta tillöguna fram á hádegi á laugardag. Verði hún samþykkt verði hún að kjarasamningi sem félagsmenn greiði síðan atkvæði um. Ástráður segir að í tillögunni sé gert ráð fyrir að launahækkanir gangi fram eftir merki markaðarins, í samræmi við það sem hefur verið samið um hjá öðrum bæði á almenna og opinbera markaðnum. Deiluaðilar hafi deilt um samning frá 2016 um jöfnun kjara kennara við laun á almenna markaðnum allt frá því lífeyriskjör voru samræmd milli markaða árið 2016 án mikils árangurs. Deilan hafi haldið áfram fram eftir hausti í fyrra án þess að nokkur merki væru um að umræðan væri að þroskast. Ástráður segir hins vegar að ákveðið skref hafi verið stigið með tillögu hans í nóvember um að deiluaðilar tækju tvo mánuði í að ræða virðismatið og hvernig ætti að nálgast það. Á þeim tíma færi fram einhvers konar mat á virði starfa svo hægt væri að nálgast það markmið að jafna kjörin. Gert ráð fyrir eingreiðslu Ástráður segir að í tillögu hans sé þessi munur á milli markaða viðurkenndur og gert ráð fyrir að launagreiðandi fallist á að greiða inn á þessa vegferð. Það væri viðurkenning á viðfangsefninu. Í meginatriðum væri verið að samþykkja að skipta um aðferðarfræði og reyna aðra leið til að jafna laun og kjör kennara við aðrar stéttir en hefur verið reynd frá árinu 2016. Í tillögunni felist eingreiðsla til kennara sem eigi að vera skref í þessa átt. Ástráður vildi ekki fara út í tillöguna í smáatriðum í Pallborðinu. Það væri eðlileg kurteisi að samninganefndir fengju færi á að kynna samninginn fyrir sínu fólki. Einnig fælist í tillögunni að samningsðilar gætu sagt samningnum upp ef þessi aðferð væri ekki að virka eða ef breytingar yrðu á vinnumarkaði almennt. „Ég finn að þetta mál er þungt í öllum herbúðum,“ segir Ástráður. Allir aðilar telji eitthvað ekki nægilega gott. Samningurinn gæti aftur á móti verið leið út úr „þeim vítahring“ sem þau eru komin í," sagði ríkissáttasemjari. Friðarskylda samþykki þau tillöguna Ástráður segir til mikils að vinna að ná samningi og afstýra þannig verkfallsaðgerðum. Erfitt væri að halda uppi jákvæðum samræðum þegar fólk væri komið í aðgerðaham. Samninganefndir hafa fram á klukkan 13:00 á laugardag til að taka afstöðu til tillögunnar. Samþykki deiluaðilar tillöguna jafngildi það því að skrifa undir kjarasamning og þá væri komin á friðarskylda og verkföllum frestað. Deiluaðilar hafi eftir það um tvær vikur til að kynna samninginn og setja hann í atkvæðagreiðslu félagsmanna. Ástráður segir ekki hægt að leysa kjaramál í eitt skipti fyrir öll en hann viti enga betri leið til að ná friði um grunnlaunasetningu kennara en aðferðina sem hann væri að leggja til. Ef þetta gangi vel geti aðferðin orðið fyrirmynd fyrir aðra að virðismati starfa. Verði tillagan hins vegar ekki samþykkt segir Ástráður að þá verði haldið áfram að leita nýrra leiða. Verkföll væru lögmæt aðferð til að knýja fram betri kjör og hann ætli ekki að dæma þær aðferðir sem notaðar væru hverju sinni.
Kennaraverkfall 2024-25 Kjaraviðræður 2023-25 Kjaramál Skóla- og menntamál Pallborðið Grunnskólar Framhaldsskólar Leikskólar Mest lesið Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Innlent Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Matthías leiðir Framsókn í Árborg Innlent Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Fleiri fréttir Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Brotist inn hjá Alberti Kvöddu Davíð hinsta sinni Enn óvissa um framtíð blóðmerahalds: „Þetta er stórt og viðkvæmt mál“ Losun virkjana fjórðungi minni með nýrri lofthreinsistöð Vegurinn á Bolafjall ekki lengur á ábyrgð utanríkisráðuneytisins Átta ár fyrir gróf brot gegn gestkomandi barni og eiginkonu Hrönn og Þórir hafna helstu ávirðingum á RIFF „Ég var skelfingu lostinn“ Aðstoða blauta og kalda gönguskíðamenn á Hofsjökli Óveðrinu slotað og ASÍ með áhyggjur af bensínverðinu Fimm fólksbílar og flutningabíll fastir á Holtavörðuheiði Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Listi Framsóknar í Kópavogi kynntur og Orri áfram oddviti Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Rændi verslun vopnaður hníf Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Sjá meira