Erlent

Nærri helmingur segir Dan­mörku standa ógn af Banda­ríkjunum

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Margir Danir virðast nú upplifa ógn af Bandaríkjunum.
Margir Danir virðast nú upplifa ógn af Bandaríkjunum. Getty

Næstum helmingur dönsku þjóðarinnar segist þeirrar skoðunnar að Danmörku stafi nú ógn af Bandaríkjunum og tæp 80 prósent segjast andvígir því að Grænlendinga gangi Bandaríkjunum á hönd.

Þetta kemur fram í nýrri YouGov könnun sem breska blaðið Guardian fjallar um í dag. 

Mikil spenna hefur veriðá milli ríkjanna undanfarnar vikur eftir að Donald Trump forseti Bandaríkjanna fór æ oftar að minnast á möguleikann á því að Bandaríkjamenn taki yfir Grænland. 

Könnuin var gerð í síðustu viku og voru rúmlega þúsund Danir spurðir út í þetta mál. 

46 prósent þjóðarinnar eru á því að brölt Bandaríkjanna sé nokkuð alvarleg eða mjög alvarleg ógn við fullveldi Danmerkur. 

Einnig var spurt út í ógnina frá öðrum löndum og telja Danir að þeim stafi meiri ógn af Bandaríkjunum heldur en af löndum á borð við Íran og Norður-Kóreu. 

Ógnin sem Dönum finnst stafa frá Rússlandi er þó miklum mun meiri, en 86 prósent aðspurðra sögðu að Rússland ógni Danmörku nokkuð eða mjög mikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×